Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Fyrir hvaða orð standa skammstafanirnar a.m. og p.m.?

Guðrún Kvaran

Skammstöfunin a.m. er stytting á latnesku orðunum ante meridiem, 'fyrir hádegi'. Orðið meridiem er þolfall sem stjórnast af forsetningunni ante og var upphaflega í latínu medi diem. Orðið medi er staðarfall af medius, 'miður' og medius dies (nefnifall) er þá 'miður dagur', það er að segja hádegi. Á sama hátt er p.m. stytting fyrir post meridiem, 'eftir hádegi'.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

17.7.2000

Spyrjandi

Daði Ingimundarson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Fyrir hvaða orð standa skammstafanirnar a.m. og p.m.?“ Vísindavefurinn, 17. júlí 2000. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=662.

Guðrún Kvaran. (2000, 17. júlí). Fyrir hvaða orð standa skammstafanirnar a.m. og p.m.? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=662

Guðrún Kvaran. „Fyrir hvaða orð standa skammstafanirnar a.m. og p.m.?“ Vísindavefurinn. 17. júl. 2000. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=662>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Fyrir hvaða orð standa skammstafanirnar a.m. og p.m.?
Skammstöfunin a.m. er stytting á latnesku orðunum ante meridiem, 'fyrir hádegi'. Orðið meridiem er þolfall sem stjórnast af forsetningunni ante og var upphaflega í latínu medi diem. Orðið medi er staðarfall af medius, 'miður' og medius dies (nefnifall) er þá 'miður dagur', það er að segja hádegi. Á sama hátt er p.m. stytting fyrir post meridiem, 'eftir hádegi'....