Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvaðan kemur orðið „brjóstsykur“ og af hverju er svoleiðis sælgæti kennt við brjóst?

Guðrún Kvaran

Orðið brjóstsykur þekkist í málinu að minnsta kosti frá því um miðja 19. öld. Það er tökuorð úr dönsku brystsukker og er sömuleiðis 19. aldar orð í Danmörku. Upphaflega var um að ræða einhvers konar lyf við brjóstverkjum sem bætt var með sykri. Þaðan kemur tengingin við brjóst. Smám saman fékk orðið nýja merkingu og var notað um sætindi, sæta mola. Í þeirri merkingu barst orðið hingað. Brystsukker virðist nú horfið að mestu úr dönsku máli.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

10.8.2010

Spyrjandi

Íris Sigurðardóttir, Sverrir Hjálmarsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið „brjóstsykur“ og af hverju er svoleiðis sælgæti kennt við brjóst?“ Vísindavefurinn, 10. ágúst 2010. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=56615.

Guðrún Kvaran. (2010, 10. ágúst). Hvaðan kemur orðið „brjóstsykur“ og af hverju er svoleiðis sælgæti kennt við brjóst? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=56615

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið „brjóstsykur“ og af hverju er svoleiðis sælgæti kennt við brjóst?“ Vísindavefurinn. 10. ágú. 2010. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=56615>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...