Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvaðan er nafnið á Fossvogsdal komið?

Svavar Sigmundsson

Fossvogsdalur er dalurinn inn af Fossvogi, en vogurinn er kenndur við foss sem var í Fossvogslæknum þar sem hann rennur í sjó. Lækurinn hefur aðrennsli úr Faxakeldu og lægðum Fossvogs og rennur til sjávar sunnan við Votaberg. Fossinn hét Hangandi, en er nú horfinn því “tímans tönn hefur unnið á mjúku móberginu sem hann féll fram af svo þar eru nú aðeins lágar smáflúðir, sem núverandi Hafnarfjarðarvegur liggur yfir” (Örnefnaskrá eftir Adolf J. E. Petersen).

Hangandi er nefndur á landamerkjum Reykjavíkur 1605 (Ólafur Lárusson: Byggð og saga (1944), bls. 103-105, sbr. kort á milli bls. 96 og 97). Hangandi er einmitt nafn á fossum víðar á landinu, til dæmis hár foss, Hangandifoss, skammt frá Rauðabergi á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu, og Hangandifoss í Fosslæk við Múlagljúfur í Öræfum í Austur-Skaftfafellssýslu (mynd í Leyndardómar Vatnajökuls eftir Hjörleif Guttormsson og Odd Sigurðsson (1997), bls. 248).



Séð yfir Fossvogsdal, Fossvogur lengst til vinstri.

Fossvogur er meðal annars nefndur á nafn í Alþingisbók frá 1706 (Alþingisbækur Íslands IX (1957-1964), bls. 383) en nafnið er vafalaust miklu eldra.

Mynd: Mats: Íslandsmyndasafn © Mats Wibe Lund

Höfundur

Svavar Sigmundsson

fyrrv. forstöðumaður Örnefnastofnunar

Útgáfudagur

16.2.2006

Spyrjandi

Árni Skúlason

Tilvísun

Svavar Sigmundsson. „Hvaðan er nafnið á Fossvogsdal komið?“ Vísindavefurinn, 16. febrúar 2006. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=5648.

Svavar Sigmundsson. (2006, 16. febrúar). Hvaðan er nafnið á Fossvogsdal komið? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=5648

Svavar Sigmundsson. „Hvaðan er nafnið á Fossvogsdal komið?“ Vísindavefurinn. 16. feb. 2006. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=5648>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvaðan er nafnið á Fossvogsdal komið?
Fossvogsdalur er dalurinn inn af Fossvogi, en vogurinn er kenndur við foss sem var í Fossvogslæknum þar sem hann rennur í sjó. Lækurinn hefur aðrennsli úr Faxakeldu og lægðum Fossvogs og rennur til sjávar sunnan við Votaberg. Fossinn hét Hangandi, en er nú horfinn því “tímans tönn hefur unnið á mjúku móberginu sem hann féll fram af svo þar eru nú aðeins lágar smáflúðir, sem núverandi Hafnarfjarðarvegur liggur yfir” (Örnefnaskrá eftir Adolf J. E. Petersen).

Hangandi er nefndur á landamerkjum Reykjavíkur 1605 (Ólafur Lárusson: Byggð og saga (1944), bls. 103-105, sbr. kort á milli bls. 96 og 97). Hangandi er einmitt nafn á fossum víðar á landinu, til dæmis hár foss, Hangandifoss, skammt frá Rauðabergi á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu, og Hangandifoss í Fosslæk við Múlagljúfur í Öræfum í Austur-Skaftfafellssýslu (mynd í Leyndardómar Vatnajökuls eftir Hjörleif Guttormsson og Odd Sigurðsson (1997), bls. 248).



Séð yfir Fossvogsdal, Fossvogur lengst til vinstri.

Fossvogur er meðal annars nefndur á nafn í Alþingisbók frá 1706 (Alþingisbækur Íslands IX (1957-1964), bls. 383) en nafnið er vafalaust miklu eldra.

Mynd: Mats: Íslandsmyndasafn © Mats Wibe Lund...