Spurning

Hvað var svona merkilegt við Vasco da Gama?

Spyrjandi

Kolbrún Björk Bjarnadóttir

Svar

Vasco da Gama (1460?-1524) var portúgalskur sæfari sem sigldi fyrstur sjóleiðina til Indlands fyrir suðurodda Afríku. Fyrsta siglingin til Indlands tók 209 daga og í henni fór leiðangurinn alls um fimm sinnum lengri leið en Kristófer Kólumbus þegar hann sigldi til Ameríku.

Ferð Vasco da Gamas heppnaðist mun betur en Kólumbusar enda var ætlun Kólumbusar að sigla til menningarsamfélaganna í austri en hann endaði í Ameríku. Kólumbus taldi að hann væri kominn til Kína þegar hann var í raun á Kúbu. Nákvæmni korta og mælinga Gama voru þess vegna mikli meiri en hjá Kólumbusi. Um siglingar Kólumbusar er hægt að lesa meira í svari Heiðu Maríu Sigurðardóttur og Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni Getið þið sagt mér frá ferðum Kólumbusar til Ameríku?

Vasco da Gama fór í tvo aðra leiðangra til Indlands. Árið 1502 stýrði hann 20 skipa leiðangri þangað og þriðja ferðin var farin árið 1524. Hann lést í þeirri ferð. Í annarri ferðinni tryggði Vasco da Gama portúgölsk viðskiptasambönd á Indlandi með miklum ógnaraðgerðum. Meðal annars tók hann skip sem var á leiðinni til Mekka, gerði skipsfarminn upptækan og brenndi skipið og drap flesta sem um borð voru, alls um 200 manns. Um 20 börn lifðu af og þau voru látin taka upp kristna trú.

Frekara lesefni á Vísindavefnum: Heimildir:
  • Silvio A. Bedini (ritstj.), Christopher Columbus and the Age of Exploration: An Encyclopedia, Da Capo Press, New York 1998.
  • Íslenska alfræðiorðabókin Örn og Örlygur, Reykjavík 1990.
Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur23.11.2009

Tilvísun

JGÞ. „Hvað var svona merkilegt við Vasco da Gama?“. Vísindavefurinn 23.11.2009. http://visindavefur.is/?id=54505. (Skoðað 18.5.2013).

Höfundur

JGÞ



Leit


Vísindadagatalið

Ólafur Björnsson
(1912-1999)
( Fyrri Næsti )

Hagfræðingur og stjórnmálamaður, samdi mörg rit um þjóðhagfræði og skyld svið og þýddi einnig erlend rit. Var um langa hríð mikilvægur ráðgjafi stjórnvalda.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013