Spurning

Er líklegt að maður fái krabbamein ef margir í fjölskyldunni hafa fengið það?

Spyrjandi

Jóhanna Sigríður
Gerður Jónsdóttir
Edda Vignisdóttir

Svar

Hér er einnig svarað spurningunum:
  • Er krabbamein arfgengt?
  • Hvaða krabbamein erfast?
Þessum spurningum er ekki hægt að svara með einföldu „já“ eða „nei“. Krabbamein eru talsvert algeng og því greinast þau í öllum fjölskyldum. Búast má við þeim mun fleiri tilvikum innan fjölskyldu eftir því sem hún er stærri og meðalaldur innan hennar hærri, en líkurnar á krabbameinum aukast mjög með hækkandi aldri.

Til eru fjölskyldur þar sem meira er um krabbamein en við mætti búast miðað við fjölda og aldur. Erfitt er þó að sýna fram á marktæka aukningu, nema teknar séu saman margar fjölskyldur og þær bornar saman við væntigildi.

Þannig rannsóknir hafa verið gerðar í mörgum löndum, þar á meðal á Íslandi. Þær hafa meðal annars leitt í ljós að tíðni tiltekinna krabbameina, mest þó brjósta- og ristilkrabbameins, er marktækt aukin í sumum ættum. Í kjölfarið hafa fundist meðfæddir gallar (stökkbreytingar) í ákveðnum genum sem auka mjög líkurnar á krabbameinum í brjóstum og ristli, og fáeinum öðrum líffærum, í þeim fjölskyldum sem bera slíkar stökkbreytingar í erfðaefninu. Þessar stökkbreytingar er venjulega hægt að greina með því að taka blóðsýni.

Hins vegar ber að geta þess að flestir sem fá þessi tilteknu krabbamein koma ekki úr þeim tiltölulega fáu ættum sem bera stökkbreytingarnar og því virðast flest þessara meina orsakast af utanaðkomandi áhrifum eða öldrun. Ennfremur hefur komið í ljós að oftast þarf ákveðið samspil umhverfis og erfða svo að krabbameinin komi fram, jafnvel hjá þeim sem bera stökkbreytingarnar.

Enn er margt óljóst varðandi það hvaða þættir í umhverfinu valda krabbameinum þótt margir þeirra séu þegar þekktir, svo sem tóbaksreykur, útfjólublá geislun og ákveðnar gerðir veira. Því er mikilvægt að halda áfram rannsóknum á áhrifum erfða og umhverfis og samspili þeirra.

Á Vísindavefnum er að finna fjölmörg svör um krabbamein, til dæmis: Önnur svör um krabbamein er hægt að nálgast með því að smella á efnisorð hér fyrir neðan.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur14.10.2005

Tilvísun

Laufey Tryggvadóttir. „Er líklegt að maður fái krabbamein ef margir í fjölskyldunni hafa fengið það? “. Vísindavefurinn 14.10.2005. http://visindavefur.is/?id=5331. (Skoðað 19.5.2013).

Höfundur

Laufey Tryggvadóttirfaraldsfræðingur, framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameinsfélags Íslands



Leit


Vísindadagatalið

Ólafur Dan Daníelsson
(1877-1957)
( Fyrri Næsti )

Stærðfræðingur og brautryðjandi í stærðfræðiiðkun á Íslandi. Skrifaði bæði vísindaritgerðir, kennslubækur og rit fyrir almenning og kenndi stærðfræði alla ævi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans