Spurning
Er hægt að smíða vélmenni heima hjá sér?
Spyrjandi
Andri Snær Helgason
Svar
Það er ekki einfalt mál að smíða vélmenni heima hjá sér. Á íslensku notum við orðið vélmenni um róbota í mannslíki. Vélmenni eru flókin fyrirbæri. Til þess að stjórna þeim þarf yfirleitt tölvu og hugbúnað, því það þarf marga mótora til að knýja hendur, fætur og aðra líkamsparta sem eiga að hreyfast.Hins vegar gætu flestir smíðað einfaldan róbot heima hjá sér. Aðeins þarf tvo mótora og ljósnema til að búa til róbot sem eltir ljós. Þeir sem hafa áhuga á að setja saman róbot geta til dæmis prófað að setja orðin simple robot inn í leitarvélar á Netinu. Þá ættu þeir að finna síður sem leiðbeina mönnum við smíðina.

Fyrsti nútíma róbotinn kom á markað árið 1961. Hann var eins konar gervihandleggur, notaður við bílaframleiðslu í verksmiðjum General Motors. Til er nýyrðið þjarki yfir þannig róbota. Það er ágætis orð enda um mikla vinnuþjarka að ræða. Orðið róbot kom fyrst fyrir í tékknesku leikriti eftir rithöfundinn Karel Čapek frá árinu 1920.
Þetta svar byggir meðal annars á þessum svörum:
- Hver fann upp fyrsta vélmennið? eftir Ulriku Andersson.
- Hvenær koma vélmenni sem geta hjálpað fólki? eftir Hrafn Þorra Þórisson.
- Hvar á Íslandi er hægt að búa til róbóta? eftir Hrafn Þorra Þórisson.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur20.8.2008
Tilvísun
JGÞ. „ Er hægt að smíða vélmenni heima hjá sér?“. Vísindavefurinn 20.8.2008. http://visindavefur.is/?id=48642. (Skoðað 22.5.2013).
Höfundur
JGÞ




