Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað þýðir INRI?

Guðrún Kvaran

Í Jóhannesar guðspjalli 19. kafla er fjallað um krossfestingu Jesú. Í 19. og 20. versi stendur:
Pílatus hafði ritað yfirskrift og sett hana á krossinn. Þar stóð skrifað: Jesús frá Nasaret, konungur Gyðinga. Margir Gyðingar lásu þessa yfirskrift, því staðurinn, þar sem Jesús var krossfestur, var nærri borginni, og þetta var ritað á hebresku, latínu og grísku.


Stafirnir INRI eru skammstöfun á latnesku áletruninni Iesvs Nazarenvs Rex Ivdorvum. Iesvs er latneska myndin af Jesús (v samsvarar u), Nazarenvs merkir 'frá Nasaret', Rex merkir 'konungur' og Ivdorvm er eignarfall fleirtölu 'Gyðinga'.

Á íslensku þýðir INRI þá: Jesús frá Nasaret, konungur Gyðinga.

Mynd: www.christiananswers.net

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

19.7.2004

Spyrjandi

Guðrún Magnea Magnúsdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir INRI?“ Vísindavefurinn, 19. júlí 2004. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4413.

Guðrún Kvaran. (2004, 19. júlí). Hvað þýðir INRI? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4413

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir INRI?“ Vísindavefurinn. 19. júl. 2004. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4413>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvað þýðir INRI?
Í Jóhannesar guðspjalli 19. kafla er fjallað um krossfestingu Jesú. Í 19. og 20. versi stendur:

Pílatus hafði ritað yfirskrift og sett hana á krossinn. Þar stóð skrifað: Jesús frá Nasaret, konungur Gyðinga. Margir Gyðingar lásu þessa yfirskrift, því staðurinn, þar sem Jesús var krossfestur, var nærri borginni, og þetta var ritað á hebresku, latínu og grísku.


Stafirnir INRI eru skammstöfun á latnesku áletruninni Iesvs Nazarenvs Rex Ivdorvum. Iesvs er latneska myndin af Jesús (v samsvarar u), Nazarenvs merkir 'frá Nasaret', Rex merkir 'konungur' og Ivdorvm er eignarfall fleirtölu 'Gyðinga'.

Á íslensku þýðir INRI þá: Jesús frá Nasaret, konungur Gyðinga.

Mynd: www.christiananswers.net...