Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Geta fiskar blikkað augunum?

JGÞ

Fiskar geta ekki blikkað augunum af þeirri einföldu ástæðu að þeir hafa engin augnlok.

Þeir sem eiga gullfiska í búri halda kannski að fiskarnir sofi ekki þar sem þeir loka ekki augunum en allir fiskar sofa - þó að þeir hafi ekki augnlok.

Uppsjávarfiskar eru oftast hreyfingarlausir þegar þeir sofa og margar tegundir ferskvatnsfiska synda undir árbakka á daginn og hvíla sig.

Augnlok manna gegna því hlutverki að verja augun fyrir ryki og ljósi og þau halda augunum einnig rökum með því að dreifa táravökva um þau.

Ef við hefðum ekki augnlok mundu augun á okkur þorna upp á nokkrum mínútum og við gætum fengið sár á hornhimnuna eða sýkingu í augað.

Við blikkum augunum ósjálfrátt um 12 sinnum á mínútu til þess að bleyta þau og táravökvinn ver okkur gegn sýkingum. Af augljósri ástæðu þurfa fiskar ekki að blikka augunum til að bleyta þau.

Heimildir og mynd:

Höfundur

Jón Gunnar Þorsteinsson

bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins

Útgáfudagur

17.3.2004

Spyrjandi

Snæfríður Jónsdóttir, f. 1994

Tilvísun

JGÞ. „Geta fiskar blikkað augunum?“ Vísindavefurinn, 17. mars 2004. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4069.

JGÞ. (2004, 17. mars). Geta fiskar blikkað augunum? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4069

JGÞ. „Geta fiskar blikkað augunum?“ Vísindavefurinn. 17. mar. 2004. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4069>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...