Spurning
Ég er að skrifa ritgerð um heimastjórnina á Íslandi árið 1904, getið þið bent mér á gagnlegar heimildir?
Spyrjandi
Helga Lucia Haraldsdóttir
Svar
Í tilefni af 100 ára afmæli heimastjórnar þann 1. febrúar 2004 hefur verið opnaður sérstakur upplýsingavefur Heimastjórn: Stjórnarráð Íslands 1904-2004.
Þar er að finna ýmislegt efni sem tengist heimastjórnarárunum 1904-1918, til að mynda sérstakt myndasafn, æviágrip 20 einstaklinga sem tengjast heimastjórninni og greinar eftir átta höfunda, þar á meðal Helga Skúla Kjartansson, Erlu Huldu Hákonardóttur og Guðjón Friðriksson.Við bendum lesendum Vísindavefsins, hvort sem þeir eru að vinna verkefni um heimastjórnina eða sækjast einfaldlega eftir fróðleik, á að kynna sér vefsíðuna Heimastjórn
Þeir sem vilja skoða heimastjórnina í samhengi við aðra atburði Íslandssögunnar á síðustu öld geta síðan lesið svar Gunnars Karlssonar við spurningunni Hverjir eru 10 merkilegustu atburðir Íslandssögunnar á 20. öld?
Ef ætlunin er að nota efni af Vísindavefnum eða öðrum vefsetrum í ritgerðir er gagnlegt að lesa svar Önnu Sveinsdóttur og Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni Hvernig á að vísa í svör á Vísindavefnum?
Mynd:
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur27.1.2004
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
JGÞ. „Ég er að skrifa ritgerð um heimastjórnina á Íslandi árið 1904, getið þið bent mér á gagnlegar heimildir?“. Vísindavefurinn 27.1.2004. http://visindavefur.is/?id=3969. (Skoðað 20.5.2013).
Höfundur
JGÞbókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins




