Spurning
Geta tígrisdýr og blettatígur eignast afkvæmi og hvað kallast það þá? Geta mismunandi kattardýr eignast afkvæmi?
Spyrjandi
Helgi Gunnarsson, fæddur 1985
Svar
Blettatígur (Acinonyx jubatus), tígrisdýr (Panthera tigris) og flest önnur kattardýr sem hafa verið rannsökuð eru með sömu litningatölu, 2n=38. Tegundir sem víkja frá þeirri reglu hafa litningatöluna 2n=36. Sami litningafjöldi í skyldum tegundum er venjulega merki um að þau geti átt lífvænleg afkvæmi innbyrðis þótt afkvæmin séu ekki alltaf frjó.Ljón (Panthera leo) og tígrisdýr hafa átt afkvæmi saman í dýragörðum en ólíklegt er að tígrisdýr og blettatígur eignist afkvæmi saman nema með sæðingum og er mér ekki kunnugt um að sú tilraun hafi verið gerð.
Mest er um að heimiliskettir (Felis catus) hafi átt afkvæmi með öðrum tegundum kattardýra fyrir tilstilli mannsins. Flest kattardýr af svipaðri stærð og heimiliskötturinn virðast geta átt afkvæmi með honum en yfirleitt eru karldýrin ófrjó. Þess vegna hefur blendingskvendýrum verið æxlað með heimilisfressum í tvær til þrjár kynslóðir til þess að ná fram frjóum karldýrum og þá fyrst geta blendingarnir farið að tímgast innbyrðis. Þetta táknar að yfirleitt eru 75-87% genamengis frjórra blendinga upprunnið úr heimilisköttum. Í Bandaríkjunum er nokkuð verslað með þessa blendinga.
Dæmi um villt kattardýr sem hafa átt afkvæmi með heimilisköttum eru asíski hlébarðakötturinn (Felis bengalensis), afríski frumskógakötturinn (Felis chaus), afríski gresjukötturinn (Felis serval) og rauðgaupan (Felis rufus) sem er amerísk tegund.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur16.4.2000
Flokkun:
Tilvísun
Páll Hersteinsson. „Geta tígrisdýr og blettatígur eignast afkvæmi og hvað kallast það þá? Geta mismunandi kattardýr eignast afkvæmi?“. Vísindavefurinn 16.4.2000. http://visindavefur.is/?id=341. (Skoðað 20.5.2013).
Höfundur
Páll Hersteinssonprófessor í líffræði við HÍ





