Spurning
Af hverju er S í dollaramerkinu ($)?
Spyrjandi
Björn Þór Björnsson
Svar
Til eru ýmsar kenningar um uppruna merkisins, $, sem oft er kallað dollaramerki. Merkið sjálft er mun eldra en gjaldmiðill Bandaríkjanna. Einna líklegast þykir að það sé afbökun á tölunni 8 og hafi upprunalega verið notað til að vísa til spænskrar myntar. Verðmæti myntarinnar var einn pesói sem skiptist í átta ríala. Merkið $ er notað í ýmsum löndum öðrum en Bandaríkjunum til að vísa til gjaldmiðils viðkomandi ríkis, yfirleitt pesóa. Til eru tvær útgáfur, önnur er eins og S með einu lóðréttu striki í gegn, hin með tveimur lóðréttum strikum.Ýmsir halda að $ merkið sé búið til með því að skrifa U yfir stafinn S og vísi til skammstöfunarinnar U.S. en það er ekki rétt.
Orðið dollar er talið eiga rætur sínar að rekja til myntar sem slegin var úr silfri sem kom úr námum í Joachimstal (Jáchymov) í Bæheimi í Tékklandi. Myntin var fyrst kölluð Joachimstaler og það síðan stytt í taler. Tal er sama orðið og dalur á íslensku og því eðlilegt að tala um Bandaríkjadali.
Mynd:
- Survival Blog for Scientists. Sótt 5.9.2010.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur30.12.2002
Flokkun:
Efnisorð
dollari dalur dollaramerki gjaldmiðlar pesói uppruni merking
Tilvísun
Gylfi Magnússon. „Af hverju er S í dollaramerkinu ($)?“. Vísindavefurinn 30.12.2002. http://visindavefur.is/?id=2979. (Skoðað 23.5.2013).
Höfundur
Gylfi Magnússondósent í hagfræði við HÍ




