Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Hvaða hundar eru stærstir?

Jón Már Halldórsson

Þyngstu ræktunarafbrigði hunda (Canis familiaris) eru enskir mastiffhundar og bernharðshundar. Meðalþyngd fullvaxinna karlhunda af þessum afbrigðum eru um 77-91 kg.

Að öllum líkindum er þyngsti hundur sem sögur fara af mastiffhundur sem reyndist vera rúm 144 kg og mældist 88,7 cm á herðakamb. Þyngsti bernharðshundurinn var 140,6 kg og 99 cm á herðakamb.

Hávaxnasta hundakynið er hins vegar stórdaninn. Stórdani í eigu breskra hjóna var 105,4 cm á hæð og vó mest 108 kg. Írskir úlfhundar koma næst stórdana að hæð. Algengt er að þeir séu um metri á hæð yfir herðakamb.

Myndir og heimild

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

9.10.2002

Spyrjandi

Aþena og Harpa, f. 1990

Efnisorð

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvaða hundar eru stærstir?“ Vísindavefurinn, 9. október 2002. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=2770.

Jón Már Halldórsson. (2002, 9. október). Hvaða hundar eru stærstir? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=2770

Jón Már Halldórsson. „Hvaða hundar eru stærstir?“ Vísindavefurinn. 9. okt. 2002. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=2770>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvaða hundar eru stærstir?
Þyngstu ræktunarafbrigði hunda (Canis familiaris) eru enskir mastiffhundar og bernharðshundar. Meðalþyngd fullvaxinna karlhunda af þessum afbrigðum eru um 77-91 kg.

Að öllum líkindum er þyngsti hundur sem sögur fara af mastiffhundur sem reyndist vera rúm 144 kg og mældist 88,7 cm á herðakamb. Þyngsti bernharðshundurinn var 140,6 kg og 99 cm á herðakamb.

Hávaxnasta hundakynið er hins vegar stórdaninn. Stórdani í eigu breskra hjóna var 105,4 cm á hæð og vó mest 108 kg. Írskir úlfhundar koma næst stórdana að hæð. Algengt er að þeir séu um metri á hæð yfir herðakamb.

Myndir og heimild...