Spurning

Er ál að finna í einhverjum matvælum?

Spyrjandi

Steinunn Björt Óttarrsdóttir
f. 1985

Svar

Ál er málmur sem kemur víða fyrir náttúrulega í matvælum, en yfirleitt í mjög litlu magni. Þó getur teplantan safnað í sig töluverðu áli sem getur lekið frá telaufunum út í te við lögun. Í tei er álið þó bundið fjölfenólum og öðrum lífrænum sameindum sem draga úr upptöku þess í smáþörmum.

Í sum matvæli, svo sem ýmsar mjólkurvörur og unnar kornvörur, er stundum bætt aukefnum sem innihalda ál. Töluvert ál er að finna í lyftidufti og þess vegna geta bökunarvörur sem í hefur verið notað lyftiduft innihaldið ál. Einnig getur ál „lekið“ í matvæli úr umbúðum (t.d. álpappír) og eldhúsáhöldum (t.d. pottum, pönnum og hnífapörum), en talið er að tiltölulega lítið berist af áli á þennan hátt í matvæli. Sums staðar erlendis er ál notað til að fjarlægja örverur úr yfirborðsvatni ætluðu til drykkjar.

Neysla áls úr matvælum er talin vera frá 2-10 mg á mann á dag. Ekki er ljóst hvort mannslíkaminn hafi einhverja þörf fyrir ál og er skortur ekki þekktur í mönnum. Í tveimur dýratilraunum hefur skortur verið framkallaður og hafa einkenni verið meðal annars skertur vöxtur.

Heilbrigðir einstaklingar ættu ekki að þurfa að hafa áhyggjur af eitrun af völdum áls úr matvælum. Há inntaka sýrustillandi lyfja og verkjalyfja, sem innihalda oft mikið ál, getur þó verið varasöm fyrir viðkvæma einstaklinga, til dæmis með skerta nýrnastarfsemi. Eitrun er mjög sjaldgæf, en helstu eitrunareinkenni eru meðal annars áhrif á taugakerfi með talörðugleikum og ofskynjunum, sársauki í beinum og beinbrot.

Ál hefur verið nefnt sem mögulegur orsakavaldur Alzheimer-sjúkdómsins, en rannsóknir hafa ekki getað sýnt fram á orsakasamband þar á milli. Ál hefur einnig verið tengt öðrum sjúkdómum í taugakerfi, svo sem Parkinsonveiki og svonefndum Lou Gehrig-sjúkdómi, en þau tengsl eru enn sem komið er óljós og hafa ekki verið studd vísindalegum rökum.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur25.9.2002

Tilvísun

Björn Sigurður Gunnarsson. „Er ál að finna í einhverjum matvælum?“. Vísindavefurinn 25.9.2002. http://visindavefur.is/?id=2731. (Skoðað 23.5.2013).

Höfundur

Björn Sigurður Gunnarssonmatvæla- og næringarfræðingur



Leit


Vísindadagatalið

Stefán Stefánsson
(1863-1921)
( Fyrri Næsti )

Grasafræðingur, skólamaður og alþingismaður, rannsakaði jurtir um allt land í mörg sumur og gaf út fyrstu Flóru Íslands. Lét sér annt um skólamál og vísindi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans