Spurning

Hvers vegna eru hundar með fleiri litninga en menn? Hefur það eitthvað með gáfur og eiginleika að gera?

Spyrjandi

Bára Sigfúsdóttir, fædd 1984

Svar

Hundar hafa 78 litninga í líkamsfrumum sínum en menn aðeins 46. Litningar hunda eru hins vegar minni en litningar manna og líklegt er að álíka mörg gen séu í erfðaefni þessara tegunda. Meirihluti gena hundsins á sér eflaust samsvörun í erfðaefni mannsins en röðun þeirra í litninga er ólík. Það er vel þekkt úr erfðafræði og þróunarsögu að tilfærsla verði á erfðaefni með þeim afleiðingum að litningum fækki eða fjölgi án þess að gen týnist eða þeim fjölgi. Afar ólíklegt er að nein bein tengsl séu á milli fjölda litninga hjá ólíkum hryggdýrategundum og sérstakra eiginleika eins og til dæmis greindar. Enn vitum við reyndar ósköp lítið um stjórnun gena á greind dýra og manna. Það er viðfangsefni sem bíður vísindamanna 21. aldarinnar.



Sjá einnig eftirfarandi svör um hunda:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur18.3.2000

Efnisorð

litningar greind hundar

Tilvísun

Guðmundur Eggertsson. „Hvers vegna eru hundar með fleiri litninga en menn? Hefur það eitthvað með gáfur og eiginleika að gera?“. Vísindavefurinn 18.3.2000. http://visindavefur.is/?id=251. (Skoðað 23.5.2013).

Höfundur

Guðmundur Eggertssonprófessor emeritus



Leit


Vísindadagatalið

Stefán Stefánsson
(1863-1921)
( Fyrri Næsti )

Grasafræðingur, skólamaður og alþingismaður, rannsakaði jurtir um allt land í mörg sumur og gaf út fyrstu Flóru Íslands. Lét sér annt um skólamál og vísindi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans