Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvers vegna er ekki hægt að beygja sögnina 'að vinna' í boðhætti?

Guðrún Kvaran

Boðháttur í íslensku er myndaður á tvo vegu. Í fyrsta lagi er hann stýfður, það er eins og nafnháttur að frádreginni endingunni, -a, nema í veikum sögnum sem enda á -aði í þátíð.


Dæmi:
  • lesa, bh. les (þú)
  • bera, bh. ber (þú)
  • skrifa, bh. skrifa (þú)
  • færa, bh. fær (þú)
  • lemja, bh. lem (þú)
  • flytja, bh. flyt (þú)
  • vinna, bh. vinn (þú)

Í öðru lagi er boðháttur viðskeyttur, það er fornafni er skeytt aftan á stofn sagnar og tekur breytingum í samræmi við grannhljóð.


Dæmi:
  • les + þú > lestu
  • ber + þú > berðu
  • skrifa + þú > skrifaðu
  • fær + þú > færðu
  • lem + þú > lemdu
  • flyt + þú > flyttu
  • vinn + þú > vinndu.

Þannig er unnt að mynda boðhátt af sögninni að vinna, en hins vegar er hann sjaldan notaður.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

15.4.2002

Spyrjandi

Bill Jensen
Friðrik Theodórsson, f. 1987

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvers vegna er ekki hægt að beygja sögnina 'að vinna' í boðhætti? “ Vísindavefurinn, 15. apríl 2002. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=2303.

Guðrún Kvaran. (2002, 15. apríl). Hvers vegna er ekki hægt að beygja sögnina 'að vinna' í boðhætti? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=2303

Guðrún Kvaran. „Hvers vegna er ekki hægt að beygja sögnina 'að vinna' í boðhætti? “ Vísindavefurinn. 15. apr. 2002. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=2303>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvers vegna er ekki hægt að beygja sögnina 'að vinna' í boðhætti?
Boðháttur í íslensku er myndaður á tvo vegu. Í fyrsta lagi er hann stýfður, það er eins og nafnháttur að frádreginni endingunni, -a, nema í veikum sögnum sem enda á -aði í þátíð.


Dæmi:
  • lesa, bh. les (þú)
  • bera, bh. ber (þú)
  • skrifa, bh. skrifa (þú)
  • færa, bh. fær (þú)
  • lemja, bh. lem (þú)
  • flytja, bh. flyt (þú)
  • vinna, bh. vinn (þú)

Í öðru lagi er boðháttur viðskeyttur, það er fornafni er skeytt aftan á stofn sagnar og tekur breytingum í samræmi við grannhljóð.


Dæmi:
  • les + þú > lestu
  • ber + þú > berðu
  • skrifa + þú > skrifaðu
  • fær + þú > færðu
  • lem + þú > lemdu
  • flyt + þú > flyttu
  • vinn + þú > vinndu.

Þannig er unnt að mynda boðhátt af sögninni að vinna, en hins vegar er hann sjaldan notaður....