Spurning
Eru til villtir gullfiskar og hver eru upprunaleg heimkynni þeirra?
Spyrjandi
Ingi Þór, f. 1991
Svar
Svokallaðir gullfiskar eru strangt til tekið aðeins ein tegund, Carassius auratus, en sú venja hefur skapast að kalla alla gulllitaða fiska í fiskabúrum og tjörnum þessu nafni. Gullfiskar tilheyra ætt karpa (Cyprinidae) og upprunalega lifa þeir villtir í vötnum og ám í Austur-Asíu. Náttúrulegir gullfiskar eru ekki gylltir heldur er algengast að þeir séu grænbrúnir og steingráir. Breytileiki í lit gullfiska er þó mikill og átti það sinn þátt í að menn fóru að rækta upp hin ólíku litarafbrigði meðal þeirra. Talið er að Kínverjar hafi fyrstir manna farið að halda gullfiska í tjörnum sér til yndisauka, líklega ekki seinna en á valdatíma Sung ættarinnar (960 - 1279).
Margra alda kerfisbundin ræktun hefur nú skapað meira en 120 ólík afbrigði gullfiska sem hægt er að kaupa í gæludýraverslunum um allan heim. Þessi mikli breytileiki gullfiska nær ekki aðeins til litafars heldur líka til líkamslögunar þeirra.
Víða um heim hafa gullfiskar sloppið úr garðtjörnum og pollum og tekið upp hið gamla villta líferni. Það sem er merkilegt í því sambandi er að þessi ræktunarafbrigði hafa smám saman tekið upp gamla litarfarið og stækkað upp í náttúrulega stærð sem getur verið allt að 30 cm. Gullfiskar í búrum og tjörnum eru hins vegar venjulega aðeins 5-10 cm á lengd. Augljóst er að hið sterka náttúruval er hér að verki.
Gullfiskar eru alætur. Þeir éta þörunga, ferskvatnsplöntur, ýmis smádýr, svo sem krabbadýr og ýmsar skordýralirfur, til dæmis lirfu moskítóflugunnar.
Mynd: U.S. Geological Survey
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur8.6.2001
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Eru til villtir gullfiskar og hver eru upprunaleg heimkynni þeirra?“. Vísindavefurinn 8.6.2001. http://visindavefur.is/?id=1684. (Skoðað 20.5.2013).
Höfundur
Jón Már Halldórssonlíffræðingur





