Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Hvað eru margar tegundir villtra spendýra á Íslandi og hvað heita þær?

Jón Már Halldórsson

Hér er einnig að finna svar við spurningu Harðar Guðjónssonar Hvert er sjaldgæfasta spendýr Íslands?

Alls eru sex tegundir villtra landspendýra á Íslandi auk þess sem tvær tegundir sela kæpa meðfram ströndum landsins.

Tegundirnar eru:
  • Tófa (Alopex lagopus)
  • Minkur (Mustela vison)
  • Hreindýr (Rangifer tarandus)
  • Hagamús (Apodemus sylvaticus)
  • Húsamús (Mus musculus)
  • Brúnrotta (Rattus norvegicus)

Selir
  • Landselur (Phoca vitulina)
  • Útselur (Halichoerus grypus)

Svartrottan (Rattus rattus) er ekki landlæg en hefur borist hingað öðru hverju með skipum og jafnóðum verið útrýmt. Nokkrar aðrar tegundir spendýra slæðast hingað stöku sinnum og má þar helst nefna hvítabirni (ísbirni).

Ekkert íslenskt spendýr er í eiginlegri merkingu sjaldgæft en sá stofn sem telur fæsta einstaklinga er án efa íslenska hreindýrið þar sem stofninn á Austurlandi hefur verið á bilinu frá 2000 til 3000 einstaklingar en nýjustu stofnstærðarmælingar frá því í júlí 2000 hljóðuðu upp á 3000 einstaklinga. Flest voru hreindýrin árið 1976, eða 3600 dýr.

Mynd: Canada's Aquatic Environments

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

10.1.2001

Spyrjandi

Gerður Einarsdóttir og Birgit Schov

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvað eru margar tegundir villtra spendýra á Íslandi og hvað heita þær?“ Vísindavefurinn, 10. janúar 2001. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=1270.

Jón Már Halldórsson. (2001, 10. janúar). Hvað eru margar tegundir villtra spendýra á Íslandi og hvað heita þær? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=1270

Jón Már Halldórsson. „Hvað eru margar tegundir villtra spendýra á Íslandi og hvað heita þær?“ Vísindavefurinn. 10. jan. 2001. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=1270>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...