Spurning

Getur maður fengið krabbamein í hjartað?

Spyrjandi

Trausti Óskarsson

Svar

Samkvæmt kennslubók í meinafræði finnast meinvörp í hjarta hjá 5% sjúklinga sem deyja úr krabbameini. Þarna er þá um að ræða illkynja æxli sem eiga uppruna sinn einhvers staðar annars staðar í líkamanum en hafa sáð sér til ýmissa líffæra, meðal annars hjartans. Það er miklum mun sjaldgæfara að æxli myndist í hjartanu sjálfu. Slík æxli eru þá yfirleitt góðkynja, það er skemma ekki vefi með vexti sínum og sá sér ekki, en þau geta að sjálfsögðu valdið mjög alvarlegum einkennum vegna staðsetningar sinnar. Sárasjaldan gerist það að illkynja vöxtur hefst í hjartavöðvanum eða í æðum hjartans.

Sjá einnig eftirfarandi svör um krabbamein:
Eftir sama höfund: Aðrir höfundar: Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur7.11.2000

Tilvísun

Helga Ögmundsdóttir. „Getur maður fengið krabbamein í hjartað?“. Vísindavefurinn 7.11.2000. http://visindavefur.is/?id=1095. (Skoðað 18.5.2013).

Höfundur

Helga Ögmundsdóttirprófessor í læknisfræði við HÍ



Leit


Vísindadagatalið

Ólafur Björnsson
(1912-1999)
( Fyrri Næsti )

Hagfræðingur og stjórnmálamaður, samdi mörg rit um þjóðhagfræði og skyld svið og þýddi einnig erlend rit. Var um langa hríð mikilvægur ráðgjafi stjórnvalda.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans