Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Hvers konar hljóð gefur minkurinn frá sér?

Rannveig Magnúsdóttir

Minkurinn gefur að jafnaði ekki frá sér mikið af hljóðum en þegar hann er æstur, hræddur eða kvalinn getur hann gefið frá sér eftirtalin hljóð:
  • Hvæs: stutt og kraftlítið hljóð sem aðallega karldýr gefa frá sér þegar þeim er ógnað. Hvæsið er um 0,8 sekúndur að lengd og tíðni þess er 0,6 kHz.
  • Öskur: flókið, mislangt ógnandi hljóð, að meðaltali 1 sekúnda að lengd, sem minkurinn notar í vörn. Styrkurinn fer upp í 20 desíbel (dB) og tíðnin rís snögglega úr 0,15 upp í 0,325 kHz með yfirtónum upp í 2 kHz.
  • Ískur: tengist yfirleitt sársauka eða hræðslu dýranna. Þessi hljóð eru stutt eða um 0,05-0,3 sekúndur að lengd og ískrið myndar stakkatóhviður. Tíðnin rís og fellur skyndilega og tíðnin fer upp í 0,65 kHz.

Minkar gefa einnig frá sér ýmis hljóð þegar þeir eru í tímgunarástandi. Karldýrin gefa frá sér sérstakt hláturkjölt þegar þeir vilja ná sambandi við kvendýrin og tímguninni fylgja mikil læti.

Minkurinn gefur að jafnaði ekki frá sér mikið af hljóðum.

Heimild:
  • Dunstone, N. 1993. The mink. T & AD Poyser Ltd. London.

Mynd:

Höfundur

Útgáfudagur

19.7.2011

Spyrjandi

Sverrir Þórisson

Tilvísun

Rannveig Magnúsdóttir. „Hvers konar hljóð gefur minkurinn frá sér?“ Vísindavefurinn, 19. júlí 2011. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=60216.

Rannveig Magnúsdóttir. (2011, 19. júlí). Hvers konar hljóð gefur minkurinn frá sér? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=60216

Rannveig Magnúsdóttir. „Hvers konar hljóð gefur minkurinn frá sér?“ Vísindavefurinn. 19. júl. 2011. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=60216>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...