Sólin Sólin Rís 05:51 • sest 21:06 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 09:47 • Sest 06:52 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 00:02 • Síðdegis: 12:48 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 06:36 • Síðdegis: 18:53 í Reykjavík

Af hverju deyja fuglar ekki þegar þeir setjast á rafmagnslínur?

ÍDÞ

Um rafmagnslínur eða háspennulínur flæðir mikill rafstraumur með hárri spennu. Spennumunur á milli rafmagnslínunnar og jarðar er þannig mjög mikill en vegna þess leitar rafstraumurinn niður í jörð.

Margir hafa eflaust lent í því að snerta rafmagnsgirðingu og fá straum. Þar sem manneskjan sem snerti rafmagnsgirðinguna stóð á jörðinni leitaði rafstraumurinn í gegnum hana. En sitji fugl á rafmagnslínu snertir hann ekki jörðina og þar með heldur rafstraumurinn áfram í gegnum háspennulínuna í stað þess að fara um fuglinn. Eins og áður segir leitar rafstraumurinn niður í jörð og fer þess vegna ekki um fuglinn sem ekki snertir jörðina.

Háspennulínur þurfa að vera hátt yfir jörðinni svo ekkert sem snertir jörð komi við þær. Stórir fuglar geta fengið rafstraum í sig snerti til dæmis vængir þeirra tvær rafmagnslínur en við það leiðir straumur á milli línanna. Straumurinn fer þá vitanlega í gegnum fuglinn sem mun að öllum líkindum drepast.

Hér að neðan má sjá skemmtilegt myndband úr breska þættinum Brainiac (ísl. Gáfnaljós). Þar er sýnt hvernig rafmagnsgirðingar virka, hvernig straumur getur farið í gegnum aðila sem haldast í hendur og einnig hvernig koma má í veg fyrir að fá straum með því að nota einangrandi efni. Vísindavefurinn mælir þó eindregið gegn því að þessi tilraun sé endurtekin!

Frekara lesefni, heimild og mynd á Vísindavefnum:

Myndband:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Útgáfudagur

12.4.2011

Spyrjandi

Eva Ósk Björgvinsdóttir, f. 1996

Tilvísun

ÍDÞ. „Af hverju deyja fuglar ekki þegar þeir setjast á rafmagnslínur?“ Vísindavefurinn, 12. apríl 2011. Sótt 16. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=59398.

ÍDÞ. (2011, 12. apríl). Af hverju deyja fuglar ekki þegar þeir setjast á rafmagnslínur? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=59398

ÍDÞ. „Af hverju deyja fuglar ekki þegar þeir setjast á rafmagnslínur?“ Vísindavefurinn. 12. apr. 2011. Vefsíða. 16. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=59398>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Af hverju deyja fuglar ekki þegar þeir setjast á rafmagnslínur?
Um rafmagnslínur eða háspennulínur flæðir mikill rafstraumur með hárri spennu. Spennumunur á milli rafmagnslínunnar og jarðar er þannig mjög mikill en vegna þess leitar rafstraumurinn niður í jörð.

Margir hafa eflaust lent í því að snerta rafmagnsgirðingu og fá straum. Þar sem manneskjan sem snerti rafmagnsgirðinguna stóð á jörðinni leitaði rafstraumurinn í gegnum hana. En sitji fugl á rafmagnslínu snertir hann ekki jörðina og þar með heldur rafstraumurinn áfram í gegnum háspennulínuna í stað þess að fara um fuglinn. Eins og áður segir leitar rafstraumurinn niður í jörð og fer þess vegna ekki um fuglinn sem ekki snertir jörðina.

Háspennulínur þurfa að vera hátt yfir jörðinni svo ekkert sem snertir jörð komi við þær. Stórir fuglar geta fengið rafstraum í sig snerti til dæmis vængir þeirra tvær rafmagnslínur en við það leiðir straumur á milli línanna. Straumurinn fer þá vitanlega í gegnum fuglinn sem mun að öllum líkindum drepast.

Hér að neðan má sjá skemmtilegt myndband úr breska þættinum Brainiac (ísl. Gáfnaljós). Þar er sýnt hvernig rafmagnsgirðingar virka, hvernig straumur getur farið í gegnum aðila sem haldast í hendur og einnig hvernig koma má í veg fyrir að fá straum með því að nota einangrandi efni. Vísindavefurinn mælir þó eindregið gegn því að þessi tilraun sé endurtekin!

Frekara lesefni, heimild og mynd á Vísindavefnum:

Myndband:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....