Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Af hverju er maður með táneglur?

JGÞ

Neglur á mönnum hafa að ýmsu leyti gegnt svipuðu hlutverki hjá mönnum og klær hjá öðrum dýrum. Neglur og klær geta til dæmis gagnast til að grípa betur utan um hluti og meðhöndla þá. Einnig er hægt að klóra aðra líkamshluta með nöglum og það er líka hægt að beita þeim í átökum við aðra.

Við mennirnir beitum þó sjaldan tánöglunum í þessum tilgangi en fyrr á þróunarbrautinni er líklegt að við höfum nýtt okkur táneglurnar meira. Neglurnar á fingrum og tám vernda líka fremstu hluta fingra og táa, en þeir eru afar næmir. Neglur eru gerðar úr dauðum frumum, alveg eins og hárið okkar.

Hægt er að lesa meira um neglur í svari Þuríðar Þorbjarnardóttur við spurningunni Hvað eru neglur?

Mynd:

Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Útgáfudagur

11.4.2011

Spyrjandi

Saga Lind Víðisdóttir, f. 1995

Efnisorð

Tilvísun

JGÞ. „Af hverju er maður með táneglur?“ Vísindavefurinn, 11. apríl 2011. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=59329.

JGÞ. (2011, 11. apríl). Af hverju er maður með táneglur? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=59329

JGÞ. „Af hverju er maður með táneglur?“ Vísindavefurinn. 11. apr. 2011. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=59329>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...