Sólin Sólin Rís 05:51 • sest 21:06 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 09:47 • Sest 06:52 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 00:02 • Síðdegis: 12:48 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 06:36 • Síðdegis: 18:53 í Reykjavík

Hvað þýðir það ef þjóðin segir nei við Icesave?

JGÞ

Lagastofnun Háskóla Íslands hefur tekið saman bækling með útskýringum á nokkrum meginatriðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave-samningana 9. apríl 2011. Þar er farið yfir ástæður atkvæðagreiðslunnar og hugsanlegar afleiðingar hennar.

Í bæklingnum segir þetta um það ef ef meirihlutinn segir nei í atkvæðagreiðslunni:
  • Icesave-samningarnir taka ekki gildi.
  • Uppgjör innstæðutrygginga vegna Icesave-reikninganna er óútkljáð viðfangsefni stjórnvalda á Íslandi, í Bretlandi og Hollandi, auk Tryggingarsjóðsins á Íslandi.
  • Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur lýst því yfir að hún muni halda áfram meðferð samningsbrotamáls gegn íslenska ríkinu og vísa málinu til EFTA-dómstólsins. Einnig gæti reynt á deiluna fyrir íslenskum dómstólum.

Í bæklingnum eru jafnframt tíundaðir nokkrir óvissuþættir sem kunna að hljótast af því ef meirihlutinn segir nei. Hér er hægt að kynna sér efni bæklingsins.

Mynd:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Útgáfudagur

5.4.2011

Spyrjandi

Daði Arnarsson, f. 1996

Tilvísun

JGÞ. „Hvað þýðir það ef þjóðin segir nei við Icesave?“ Vísindavefurinn, 5. apríl 2011. Sótt 16. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=59264.

JGÞ. (2011, 5. apríl). Hvað þýðir það ef þjóðin segir nei við Icesave? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=59264

JGÞ. „Hvað þýðir það ef þjóðin segir nei við Icesave?“ Vísindavefurinn. 5. apr. 2011. Vefsíða. 16. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=59264>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvað þýðir það ef þjóðin segir nei við Icesave?
Lagastofnun Háskóla Íslands hefur tekið saman bækling með útskýringum á nokkrum meginatriðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave-samningana 9. apríl 2011. Þar er farið yfir ástæður atkvæðagreiðslunnar og hugsanlegar afleiðingar hennar.

Í bæklingnum segir þetta um það ef ef meirihlutinn segir nei í atkvæðagreiðslunni:
  • Icesave-samningarnir taka ekki gildi.
  • Uppgjör innstæðutrygginga vegna Icesave-reikninganna er óútkljáð viðfangsefni stjórnvalda á Íslandi, í Bretlandi og Hollandi, auk Tryggingarsjóðsins á Íslandi.
  • Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur lýst því yfir að hún muni halda áfram meðferð samningsbrotamáls gegn íslenska ríkinu og vísa málinu til EFTA-dómstólsins. Einnig gæti reynt á deiluna fyrir íslenskum dómstólum.

Í bæklingnum eru jafnframt tíundaðir nokkrir óvissuþættir sem kunna að hljótast af því ef meirihlutinn segir nei. Hér er hægt að kynna sér efni bæklingsins.

Mynd:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur. ...