Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvaðan kemur orðalagið að vera stikk eða stikkfrí?

Guðrún Kvaran

Stikk er sérstakur leikur sem vinsæll var þegar í upphafi 20. aldar. Hann fór þannig fram að hnappar, tölur eða annað þess háttar var lagt á jörðina í ákveðinni fjarlægð frá þeim sem voru að spila. Þeir höfðu í hendinni lítinn, flatan stein eða litla málmplötu, sem nefndist stikki, og köstuðu í átt að hnöppunum eins nærri þeim og þeir gátu. Sá sem átti stikkið sem næst komst hnöppunum vann leikinn. Þegar einhver vildi leika þennan leik sagði hann við félaga sinn eða félaga sína: „Eigum við að stikka?“

Er einhver stikkfrí?

Stikk var einnig notað um sérstakt boltakast þar sem hitta átti í leikmenn með bolta. Sá sem var stikkfrí var undanþeginn því að kastað væri í hann. Var það einkum haft um minni börn sem fengu að vera með þeim eldri til málamynda. Sá sem vildi gera stutt hlé í leiknum gat líka kallað: „Ég er stikkfrí“. Leikirnir og orðin sem þeim fylgja eru talin úr dönsku, samanber Íslenska orðsifjabók Ásgeirs Blöndals Magnússonar (1989:959).

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

13.5.2011

Spyrjandi

Þorvaldur Helgi Jóhannsson, f. 1993

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðalagið að vera stikk eða stikkfrí?“ Vísindavefurinn, 13. maí 2011. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=59145.

Guðrún Kvaran. (2011, 13. maí). Hvaðan kemur orðalagið að vera stikk eða stikkfrí? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=59145

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðalagið að vera stikk eða stikkfrí?“ Vísindavefurinn. 13. maí. 2011. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=59145>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...