Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Af hverju eru epli mismunandi á litinn, gul, rauð og græn?

ÍDÞ

Epli geta verið mismunandi að stærð og lit. Öll epli eru í upphafi græn að lit og innihalda þá blaðgrænu sem gerir þau græn á litinn. Þegar eplið þroskast hættir það að framleiða blaðgrænuna og græni liturinn minnkar með tímanum. Epli verða svo gul þar sem að litarefnið karótenóíð nær yfirhöndinni, það var þó til staðar þegar eplið var grænt en litarefni blaðgrænunnar er sterkara. Ferli rauðra epla er eins og hjá gulum nema litarefnið antósýanín kemur þá fyrir og gerir það rautt.

Þetta ferli er kemlíkt því sem gerist hjá paprikum en um það má lesa í svari EDS við spurningunni: Hver er munurinn á gulri, grænni og rauðri papriku?

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Heimild og mynd:

Höfundur

Útgáfudagur

16.3.2011

Spyrjandi

Gerður Arna Guðjónsdóttir, f. 1997

Tilvísun

ÍDÞ. „Af hverju eru epli mismunandi á litinn, gul, rauð og græn?“ Vísindavefurinn, 16. mars 2011. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=58920.

ÍDÞ. (2011, 16. mars). Af hverju eru epli mismunandi á litinn, gul, rauð og græn? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=58920

ÍDÞ. „Af hverju eru epli mismunandi á litinn, gul, rauð og græn?“ Vísindavefurinn. 16. mar. 2011. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=58920>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Af hverju eru epli mismunandi á litinn, gul, rauð og græn?
Epli geta verið mismunandi að stærð og lit. Öll epli eru í upphafi græn að lit og innihalda þá blaðgrænu sem gerir þau græn á litinn. Þegar eplið þroskast hættir það að framleiða blaðgrænuna og græni liturinn minnkar með tímanum. Epli verða svo gul þar sem að litarefnið karótenóíð nær yfirhöndinni, það var þó til staðar þegar eplið var grænt en litarefni blaðgrænunnar er sterkara. Ferli rauðra epla er eins og hjá gulum nema litarefnið antósýanín kemur þá fyrir og gerir það rautt.

Þetta ferli er kemlíkt því sem gerist hjá paprikum en um það má lesa í svari EDS við spurningunni: Hver er munurinn á gulri, grænni og rauðri papriku?

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Heimild og mynd:...