Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Hvers vegna koma eldgos?

ÍDÞ

Eldgos verða af því að jörðin er mjög heit að innan. Í kjarna jarðarinnar er hitinn um 5000°C en í miðju jarðar er hitinn um 7000°C. Hitinn leitar út en kemst ekki nógu hratt upp á yfirborðið nema efnið í jörðinni hreyfist. Þannig kælir jörðin sig með tilfærslu á heitu efni upp á yfirborðið en í svari Ármanns Höskuldssonar við spurningunni Hvað er eldgos? stendur:

Í þessu ferli á sér stað hlutbráðnun á möttulefni jarðar og til verður heitur vökvi sem nefndur er kvika. Kvikan leitar síðan upp til yfirborðs vegna þess að hún er léttari en umhverfi sitt. Þegar kvikan kemst upp á yfirborð verður mikið sjónarspil sem að við köllum eldgos.

Eldgosið í Kötlu árið 1918.

Hægt er að framkvæma skemmtilega tilraun heima hjá sér til að líkja eftir og skilja betur hvernig eldgos koma til. Þá er kalt vatn og haframjöl sett í pott á eldavél og kveikt undir. Ekki má hreyfa pottinn á eldavélinni. Eftir smástund fer vatnið og haframjölið að hreyfast í litlum strókum upp á við vegna hitans en kólnar og leitar niður annars staðar. Þetta dæmi er fengið upp úr bókinni Af hverju gjósa fjöll? en það er spurningabók Vísindavefsins og Forlagsins um vísindi handa börnum og almenningi.

Mynd:

Spurning Iðunnar Heklu Heiðarsdóttur hljómaði svona:
Við erum að gera verkefni í skólanum, getið þið sagt okkur af hverju eldgos koma og hvernig og setja kannski skýringarmynd fyrir okkur?


Þetta svar er í flokknum „bekkirnir spyrja“ þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Útgáfudagur

16.3.2011

Spyrjandi

Tinna Mirjam Reynisdóttir, f. 1997, Kritsana Moollek, f. 1997, Iðunn Hekla Heiðarsdóttir, 5. VRG Álfhólsskóli

Tilvísun

ÍDÞ. „Hvers vegna koma eldgos? “ Vísindavefurinn, 16. mars 2011. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=58918.

ÍDÞ. (2011, 16. mars). Hvers vegna koma eldgos? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=58918

ÍDÞ. „Hvers vegna koma eldgos? “ Vísindavefurinn. 16. mar. 2011. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=58918>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvers vegna koma eldgos?
Eldgos verða af því að jörðin er mjög heit að innan. Í kjarna jarðarinnar er hitinn um 5000°C en í miðju jarðar er hitinn um 7000°C. Hitinn leitar út en kemst ekki nógu hratt upp á yfirborðið nema efnið í jörðinni hreyfist. Þannig kælir jörðin sig með tilfærslu á heitu efni upp á yfirborðið en í svari Ármanns Höskuldssonar við spurningunni Hvað er eldgos? stendur:

Í þessu ferli á sér stað hlutbráðnun á möttulefni jarðar og til verður heitur vökvi sem nefndur er kvika. Kvikan leitar síðan upp til yfirborðs vegna þess að hún er léttari en umhverfi sitt. Þegar kvikan kemst upp á yfirborð verður mikið sjónarspil sem að við köllum eldgos.

Eldgosið í Kötlu árið 1918.

Hægt er að framkvæma skemmtilega tilraun heima hjá sér til að líkja eftir og skilja betur hvernig eldgos koma til. Þá er kalt vatn og haframjöl sett í pott á eldavél og kveikt undir. Ekki má hreyfa pottinn á eldavélinni. Eftir smástund fer vatnið og haframjölið að hreyfast í litlum strókum upp á við vegna hitans en kólnar og leitar niður annars staðar. Þetta dæmi er fengið upp úr bókinni Af hverju gjósa fjöll? en það er spurningabók Vísindavefsins og Forlagsins um vísindi handa börnum og almenningi.

Mynd:

Spurning Iðunnar Heklu Heiðarsdóttur hljómaði svona:
Við erum að gera verkefni í skólanum, getið þið sagt okkur af hverju eldgos koma og hvernig og setja kannski skýringarmynd fyrir okkur?


Þetta svar er í flokknum „bekkirnir spyrja“ þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....