Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað heitir skaftið á sverði?

Guðrún Kvaran

Hjalt (hvk), í fleirtölu hjölt, er þverstykkið ofan og neðan við meðalkaflann, handfangið, á sverði. Fyrir neðan neðra hjaltið tekur við brandurinn, sjálft sverðsblaðið. Orðið hjalt er gamalt og finnst í öllum eldri stigum germanskra mála. Ásgeir Blöndal Magnússon (Íslensk orðsifjabók 1989:332-333) telur það komið af indóevrópsku rótinni *kel-d- í merkingunni ‛kljúfa, slá’. Benda má á ágæta skýringarmynd af sverði á bls. 1776 í Íslenskri orðabók (2002).

Mynd:

Spurningin í heild sinni hljóðaði svo:

Hvað heitir skaftið á sverði? Hjölt, hjalt eða hjöltur? Hvaða kyn hefur orðið og hver er saga þess?

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

22.6.2011

Spyrjandi

Olof Lundgren, f. 1993

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað heitir skaftið á sverði?“ Vísindavefurinn, 22. júní 2011. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=58852.

Guðrún Kvaran. (2011, 22. júní). Hvað heitir skaftið á sverði? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=58852

Guðrún Kvaran. „Hvað heitir skaftið á sverði?“ Vísindavefurinn. 22. jún. 2011. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=58852>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...