Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað stendur „band“ fyrir í bandbrjálaður?

Guðrún Kvaran

Band- í orðum eins og bandvitlaus, bandbrjálaður, bandóður er svokallaður herðandi forliður. Hann er leiddur af nafnorðinu band ‛eitthvað til að binda með, snæri, fjötur, haft’ og vísar til þess er menn, sem misstu stjórn á sér og urðu alveg ærir voru settir í bönd, fjötraðir, þar til æðið rann af þeim. Í dag mundi lögregla setja slíkan mann í handjárn.

Forliðurinn er nú notaður í almennari merkingu og orðin sem nefnd voru hér að framan notuð bæði um þá sem taka æðiskast og eins um þá sem hegða sér verulega óvarlega. Ef einhver hættir sér til dæmis fram á hengiflug eða klifrar í klettum án búnaðar er sagt: „Er maðurinn bandvitlaus (bandbrjálaður, bandóður).“

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

1.2.2011

Spyrjandi

Bergþóra Thea Birgisdóttir, f. 2010

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað stendur „band“ fyrir í bandbrjálaður?“ Vísindavefurinn, 1. febrúar 2011. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=57870.

Guðrún Kvaran. (2011, 1. febrúar). Hvað stendur „band“ fyrir í bandbrjálaður? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=57870

Guðrún Kvaran. „Hvað stendur „band“ fyrir í bandbrjálaður?“ Vísindavefurinn. 1. feb. 2011. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=57870>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...