Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Af hverju segjum við 'í morgunsárið'?

Guðrún Kvaran

Orðið morgunsár er í raun samsett úr orðunum morgunn og atviksorðinu ár í merkingunni ‛árla, snemma’. Elstu dæmi Orðabókar Háskólans eru frá um miðja 19. öld úr þýðingum Sveinbjarnar Egilssonar á Odysseifs- og Ilíonskviðum.

Morgunsár, sem er notað í hvorugkyni í sambandinu í morgunsárið, merkir því ‛árla morguns, snemma morguns’. Hugsanlegt er að hvorugkynið sé orðið til við þann misskilning að orðið sé sett saman úr morgunn og sár. Ljóðskáldið Jónas Svafár lék sér með þennan misskilning þegar hann notaði í ljóði ,,Það blæðir úr morgunsárinu“. Þarna vísar hann til morgunroðans í morguns-árið, það er snemma morguns, sem gæti minnt á morgun-sár.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

29.11.2010

Spyrjandi

Dögg Matthíasdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Af hverju segjum við 'í morgunsárið'?“ Vísindavefurinn, 29. nóvember 2010. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=57236.

Guðrún Kvaran. (2010, 29. nóvember). Af hverju segjum við 'í morgunsárið'? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=57236

Guðrún Kvaran. „Af hverju segjum við 'í morgunsárið'?“ Vísindavefurinn. 29. nóv. 2010. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=57236>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...