Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Ættu óargadýr ekki frekar að kallast óragadýr, það er dýr sem ekki hræðast neitt?

Guðrún Kvaran

Orðið argur hefur fleiri en eina merkingu en ein þeirra er ‛ragur, huglaus’. Í eldra máli var einnig notað lýsingarorðið óargur í merkingunni ‛óragur, djarfur’. Lýsingarorðið óarga, sem beygist eftir veikri beygingu, var einnig notað í eldra máli í merkingunni ‛villtur, grimmur’. Í samsetningunni óargadýr er orðið því notað um grimmt dýr, villidýr, dýr sem ekkert hræðist og er óragt.

Ísbirnir eru óargadýr.

Mynd:

Upprunalega spurniningin hljóðaði svona:
Er óargadýr rétt? Ætti þetta ekki að vera óragadýr (það er dýr sem ekki hræðist neitt og er því hættulegt)?

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

26.10.2010

Spyrjandi

Eggert Stefánsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Ættu óargadýr ekki frekar að kallast óragadýr, það er dýr sem ekki hræðast neitt?“ Vísindavefurinn, 26. október 2010. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=56921.

Guðrún Kvaran. (2010, 26. október). Ættu óargadýr ekki frekar að kallast óragadýr, það er dýr sem ekki hræðast neitt? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=56921

Guðrún Kvaran. „Ættu óargadýr ekki frekar að kallast óragadýr, það er dýr sem ekki hræðast neitt?“ Vísindavefurinn. 26. okt. 2010. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=56921>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...