Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvernig brjóta menn odd af oflæti sínu?

Guðrún Kvaran

Orðasambandið að brjóta odd af oflæti sínu er notað um þann sem lendir í þannig aðstæðum að hann verður að vinna bug á stórlæti sínu, láta af stolti sínu.

Spjótið verður heldur bitlaust ef oddurinn hefur verið brotinn af.

Það er gamalt og þekkist þegar í fornu máli. Orðið oflæti merkir ‛dramb, hroki’. Líkingin er þannig hugsuð að oflæti sé eins konar vopn (sverð eða spjót). Þegar oddurinn hefur verið brotinn af verður vopnið sljótt og bitlítið. Viðkomandi getur ekki barist af sömu hörku og áður.

Mynd:

Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Hvort brjóta menn odd eða obb af oflæti sínu og við hvað er þá átt?

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

25.10.2010

Spyrjandi

Andrés Ingason

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvernig brjóta menn odd af oflæti sínu?“ Vísindavefurinn, 25. október 2010. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=56920.

Guðrún Kvaran. (2010, 25. október). Hvernig brjóta menn odd af oflæti sínu? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=56920

Guðrún Kvaran. „Hvernig brjóta menn odd af oflæti sínu?“ Vísindavefurinn. 25. okt. 2010. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=56920>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...