Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Íþróttamenn sjást stundum nota munntóbak, hvernig fer þetta tvennt saman?

Ásta Óskarsdóttir og Haukur Valtýsson

Þegar talað er um reyklaust tóbak er átt við neftóbak og munntóbak. Neftóbaks hefur verið neytt á Íslandi í mjög langan tíma. Munntóbaks hefur aftur á móti verið neytt í mun styttri tíma svo einhverju nemi en notkun þess hefur farið mjög vaxandi á undanförnum árum einkum meðal yngra fólks. Ein skýringin á þessari auknu neyslu ungs fólks gæti verið sú, að það hefur verið talið minna ávanabindandi og ekki eins hættulegt og að reykja. Nú er aftur á móti ljóst að neysla munntóbaks er ekki síður ávanabindandi en sígarettureykingar.

Munntóbak er þurrkað og samanpressað og inniheldur mikið magn af nikótíni, um það bil þrefalt meira en er í sígarettutóbaki. Nikótínið hefur mjög slakandi áhrif þegar þess er neytt í miklu magni og verður neytandi munntóbaks mun frekar háður því en sá sem notar reyktóbak. Þegar munntóbakið er lagt undir vörina kemst það auðveldlega inn í háræðar í slímhúð munnsins og skilar mjög hratt áhrifum inn í líkama viðkomandi einstaklings. Fljótt verða sýnileg merki á slímhúð þeirra einstaklinga sem nota munntóbak, hún verður sprungin og jafnvel rifin að sjá.



Flest bendir flest til þess að hætta á krabbameini sé minni við notkun reyklausa tóbaksins, en hætta á eiturverkunum nikótíns, einkum hjarta- og æðasjúkdómum, sé jafnmikil eða meiri.

Munntóbak er hlaðið sykri til bragðauka, hækkar því sýrustigið í munninum og eykur þar með líkur á tannskemmdum. Oft verður tannholdið bólgið og það hörfar upp á rót tannarinnar. Óbragð og ólykt fylgir bólgum í tannholdi, einnig minnkar bragð og lyktarskyn þeirra sem nota munntóbak. Auk þess er það mikið lýti að sjá fólk með útbólgna vör undan tóbaki.

Talið er að í munntóbaki séu að minnsta kosti 28 krabbameinsvaldandi efni og sum í meira mæli en í reyktóbaki. Slímhúð þykknar og langvarandi notkun eykur líkur á krabbameini í munnholi og munnvatnskirtlum, einnig í vélinda og ofanverðum meltingarvegi þar sem einhverju af munntóbakssafa er kyngt; tóbakið er líka talið geta valdið krabbameini í brisi. Sá sem notar 10 grömm af munntóbaki á dag fær í sig þrefalt meira af krabbameinsvaldandi efnum en sá sem reykir 1 pakka af sígarettum á dag. Talið er að við notkun munntóbaks aukist hættan á því að fólk fái munnkrabbamein verulega. Um 37% þeirra sem fá krabbamein í munnhol eftir notkun munntóbaks eru enn á lífi fimm árum síðar.

Íþróttir og munntóbak eiga ekki vel saman frekar en íþróttir og reykingar. Við notkun á munntóbaki þrengjast æðarnar í líkamanum og blóðflæði til vöðva minnkar. Þar af leiðandi tekur það mun lengri tíma að byggja upp vöðva hjá þeim einstaklingum sem nota munntóbak en hjá þeim sem gera það ekki. Það er meiri hætta á meiðslum og fólk er líka lengur að ná sér eftir meiðsli ef það notar munntóbak. Notkunin veldur greinilegri hækkun á blóðþrýstingi.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:

Mynd:

Þetta svar er örlítið stytt útgáfa af texta um munntóbak af vefnum Doktor.is og birt með góðfúslegu leyfi.

Höfundar

Útgáfudagur

5.8.2010

Spyrjandi

Ritstjórn

Tilvísun

Ásta Óskarsdóttir og Haukur Valtýsson. „Íþróttamenn sjást stundum nota munntóbak, hvernig fer þetta tvennt saman?“ Vísindavefurinn, 5. ágúst 2010. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=56688.

Ásta Óskarsdóttir og Haukur Valtýsson. (2010, 5. ágúst). Íþróttamenn sjást stundum nota munntóbak, hvernig fer þetta tvennt saman? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=56688

Ásta Óskarsdóttir og Haukur Valtýsson. „Íþróttamenn sjást stundum nota munntóbak, hvernig fer þetta tvennt saman?“ Vísindavefurinn. 5. ágú. 2010. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=56688>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Íþróttamenn sjást stundum nota munntóbak, hvernig fer þetta tvennt saman?
Þegar talað er um reyklaust tóbak er átt við neftóbak og munntóbak. Neftóbaks hefur verið neytt á Íslandi í mjög langan tíma. Munntóbaks hefur aftur á móti verið neytt í mun styttri tíma svo einhverju nemi en notkun þess hefur farið mjög vaxandi á undanförnum árum einkum meðal yngra fólks. Ein skýringin á þessari auknu neyslu ungs fólks gæti verið sú, að það hefur verið talið minna ávanabindandi og ekki eins hættulegt og að reykja. Nú er aftur á móti ljóst að neysla munntóbaks er ekki síður ávanabindandi en sígarettureykingar.

Munntóbak er þurrkað og samanpressað og inniheldur mikið magn af nikótíni, um það bil þrefalt meira en er í sígarettutóbaki. Nikótínið hefur mjög slakandi áhrif þegar þess er neytt í miklu magni og verður neytandi munntóbaks mun frekar háður því en sá sem notar reyktóbak. Þegar munntóbakið er lagt undir vörina kemst það auðveldlega inn í háræðar í slímhúð munnsins og skilar mjög hratt áhrifum inn í líkama viðkomandi einstaklings. Fljótt verða sýnileg merki á slímhúð þeirra einstaklinga sem nota munntóbak, hún verður sprungin og jafnvel rifin að sjá.



Flest bendir flest til þess að hætta á krabbameini sé minni við notkun reyklausa tóbaksins, en hætta á eiturverkunum nikótíns, einkum hjarta- og æðasjúkdómum, sé jafnmikil eða meiri.

Munntóbak er hlaðið sykri til bragðauka, hækkar því sýrustigið í munninum og eykur þar með líkur á tannskemmdum. Oft verður tannholdið bólgið og það hörfar upp á rót tannarinnar. Óbragð og ólykt fylgir bólgum í tannholdi, einnig minnkar bragð og lyktarskyn þeirra sem nota munntóbak. Auk þess er það mikið lýti að sjá fólk með útbólgna vör undan tóbaki.

Talið er að í munntóbaki séu að minnsta kosti 28 krabbameinsvaldandi efni og sum í meira mæli en í reyktóbaki. Slímhúð þykknar og langvarandi notkun eykur líkur á krabbameini í munnholi og munnvatnskirtlum, einnig í vélinda og ofanverðum meltingarvegi þar sem einhverju af munntóbakssafa er kyngt; tóbakið er líka talið geta valdið krabbameini í brisi. Sá sem notar 10 grömm af munntóbaki á dag fær í sig þrefalt meira af krabbameinsvaldandi efnum en sá sem reykir 1 pakka af sígarettum á dag. Talið er að við notkun munntóbaks aukist hættan á því að fólk fái munnkrabbamein verulega. Um 37% þeirra sem fá krabbamein í munnhol eftir notkun munntóbaks eru enn á lífi fimm árum síðar.

Íþróttir og munntóbak eiga ekki vel saman frekar en íþróttir og reykingar. Við notkun á munntóbaki þrengjast æðarnar í líkamanum og blóðflæði til vöðva minnkar. Þar af leiðandi tekur það mun lengri tíma að byggja upp vöðva hjá þeim einstaklingum sem nota munntóbak en hjá þeim sem gera það ekki. Það er meiri hætta á meiðslum og fólk er líka lengur að ná sér eftir meiðsli ef það notar munntóbak. Notkunin veldur greinilegri hækkun á blóðþrýstingi.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:

Mynd:

Þetta svar er örlítið stytt útgáfa af texta um munntóbak af vefnum Doktor.is og birt með góðfúslegu leyfi....