Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Hvar eru helstu lúðumið í Faxaflóa og út af Reykjanesi?

Jón Már Halldórsson

Ef rýnt er í gögn Hafrannsóknastofnunar sem unnin eru úr afladagbókum íslenskra fiskiskipa kemur fram að afli á hvern ferkílómetra sjávar í Faxaflóa er á bilinu 10 til 100 kg. Aflinn er nokkuð jafnt dreifður yfir allan flóann og því er ekki hægt að tilgreina eitt svæði í Faxaflóa sem betri stað til lúðuveiða en önnur.

Svipaða sögu er að segja af miðum út af Reykjanesi. Í landgrunnshallanum suðvestur af Reykjanesskaga er þó ljóst að lúðuafli er margfalt meiri en á öðrum svæðum innan fiskveiðilögsögunnar. Þar má því finna helstu lúðumið Íslands, ef tekið er mið af afladagbókum íslenskra veiðiskipa.


Veiðisvæði lúðu við Ísland árið 2009. Dekkstu svæðin sýna mestan afla (tonn/sjm2).

Lúðuafli á Íslandsmiðum var á síðasta ári 570 tonn og er hann lítill miðað við árlegan afla hér áður fyrr. Til að mynda var aflinn rúmlega 4 þúsund tonn árið 1965.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Heimildir og mynd:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

7.7.2010

Spyrjandi

Þór Kröyer

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvar eru helstu lúðumið í Faxaflóa og út af Reykjanesi?“ Vísindavefurinn, 7. júlí 2010. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=56606.

Jón Már Halldórsson. (2010, 7. júlí). Hvar eru helstu lúðumið í Faxaflóa og út af Reykjanesi? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=56606

Jón Már Halldórsson. „Hvar eru helstu lúðumið í Faxaflóa og út af Reykjanesi?“ Vísindavefurinn. 7. júl. 2010. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=56606>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvar eru helstu lúðumið í Faxaflóa og út af Reykjanesi?
Ef rýnt er í gögn Hafrannsóknastofnunar sem unnin eru úr afladagbókum íslenskra fiskiskipa kemur fram að afli á hvern ferkílómetra sjávar í Faxaflóa er á bilinu 10 til 100 kg. Aflinn er nokkuð jafnt dreifður yfir allan flóann og því er ekki hægt að tilgreina eitt svæði í Faxaflóa sem betri stað til lúðuveiða en önnur.

Svipaða sögu er að segja af miðum út af Reykjanesi. Í landgrunnshallanum suðvestur af Reykjanesskaga er þó ljóst að lúðuafli er margfalt meiri en á öðrum svæðum innan fiskveiðilögsögunnar. Þar má því finna helstu lúðumið Íslands, ef tekið er mið af afladagbókum íslenskra veiðiskipa.


Veiðisvæði lúðu við Ísland árið 2009. Dekkstu svæðin sýna mestan afla (tonn/sjm2).

Lúðuafli á Íslandsmiðum var á síðasta ári 570 tonn og er hann lítill miðað við árlegan afla hér áður fyrr. Til að mynda var aflinn rúmlega 4 þúsund tonn árið 1965.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Heimildir og mynd:...