Sólin Sólin Rís 05:26 • sest 21:28 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:24 • Sest 05:22 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:10 • Síðdegis: 18:30 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:11 • Síðdegis: 12:20 í Reykjavík

Halda hrafnar þing?

Jón Már Halldórsson

Orðið þing er meðal annars notað um fund og mannamót. Upphafleg merking orðsin er talin vera samkoma. Orðið hrafnaþing er haft um það þegar hrafnar flykkjast saman á jörðu niðri. Í yfirfærðri merkingu er síðan talað um mannamót sem hrafnaþing.

Kunn er sú þjóðsaga að hrafnar haldi hrafnaþing á haustin og skipi sér síðan niður á bæi yfir veturinn, tveir og tveir saman. Þeir leita því á náðir manna þegar hart er í ári og jarðbönn eru.

Tveir hrafnar, spurnig hvort það geti talist þing.

En hrafnar safnast ekki aðeins saman á haustin heldur einnig yfir veturinn og fram að þeim tíma þegar þeir taka að helga sér óðöl. Þeir leita í hópum á náttstaði og geta verið þar tugum saman. Kunnastir slíkra náttstaða í grennd við höfuðborgarsvæðið er í hlíðum Esju og Ingólfsfjalls. Þess vegna er vel hægt að segja að hrafnar haldi þing!

Mynd:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

9.4.2010

Spyrjandi

Þorsteinn Viðar Antonsson

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Halda hrafnar þing?“ Vísindavefurinn, 9. apríl 2010. Sótt 23. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=55596.

Jón Már Halldórsson. (2010, 9. apríl). Halda hrafnar þing? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=55596

Jón Már Halldórsson. „Halda hrafnar þing?“ Vísindavefurinn. 9. apr. 2010. Vefsíða. 23. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=55596>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...