Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Hvar eru appelsínur ræktaðar?

Jón Már Halldórsson

Í Brasilíu eru ræktaðar fleiri appelsínur en í öðrum löndum. Appelsínuuppskera Brasilíumanna árið 2007 var um 18,7 milljónir tonna eða rúmlega 29% af heimsframleiðslunni. Útflutningsverðmæti brasilíska appelsínuiðnaðarins var á því ári hvorki meira né minna en 3,3 milljarðar dollara sem jafngildir 406 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi þann 20. nóvember 2009. Það land sem kemur næst Brasilíu eru Bandaríkin með 7,4 milljónir tonna og 11,6% af heimsframleiðslunni.

Appelsínur eru ræktaðar víða um heim. Þessar eru til dæmis frá palestínska bænum Kafr Jammal.

Taflan hér að neðan sýnir tíu helstu framleiðendur appelsína í heiminum.

LandMagn
(í milljónum tonna)
Hlutfall af
heimsframleiðslu
Brasilía18,729,2%
Bandaríkin7,411,6%
Mexíkó4,26,6%
Indland3,96,1%
Kína3,25,0%
Indónesía2,64,1%
Spánn2,64,1%
Íran2,33,6%
Ítalía2,33,6%
Egyptaland1,82,8%

Appelsínuræktun er áttunda mikilvægasta landbúnaðargreinin í Suður-Ameríku og er heildarframleiðsla í álfunni um 21,2 milljónir tonna. Hún er hins vegar ekki meðal 20 mikilvægustu landbúnaðargreina á heimsvísu.

Kjörhitastig fyrir appelsínurækt er á bilinu 15,5 – 29,0°C. Víða um heim eru appelsínur framleiddar í gróðurhúsum þar sem náttúrlegar aðstæður eru að einhverju leyti óhagstæðar. Langstærsti hluti heimsframleiðslunnar fer þó fram utanhúss. Á þeim svæðum þar sem hætta er á frosti hefur verið reynt að verja ræktunina með því að úða appelsínutrén með vatni. Ef frost skellur á, þá frýs vatnsúðinn og myndar varnarskjöld fyrir appelsínurnar þó að lofthitinn fari vel undir 0°C.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:

Heimild og mynd:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

1.12.2009

Spyrjandi

Lillý Óladóttir

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvar eru appelsínur ræktaðar?“ Vísindavefurinn, 1. desember 2009. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=54405.

Jón Már Halldórsson. (2009, 1. desember). Hvar eru appelsínur ræktaðar? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=54405

Jón Már Halldórsson. „Hvar eru appelsínur ræktaðar?“ Vísindavefurinn. 1. des. 2009. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=54405>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar