Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Úr hvaða tveimur efnum eru litningar og hvaða hlutverki gegna efnin?

EDS

Litningar eru þráðlaga frumulíffæri í kjarna frumna og eru einungis sjáanlegir á meðan fruma er að skipta sér. Litningar eru gerðir úr kjarnsýrunni DNA og prótínum.

DNA er skammstöfun og stendur fyrir ensku orðin deoxyribo nucleic acid en á íslensku er stundum notuð skammstöfunin DKS sem stendur fyrir deoxýríbósakjarnsýra. DNA er erfðaefni allra lífvera og geymir þær upplýsingar sem þarf til þess að búa til lífveru og halda henni gangandi. DNA er stundum líkt við uppskrift eða teikningu þar sem það geymir upplýsingar um gerð prótína sem fruman myndar. Prótín eru helstu byggingarefni frumna, auk þess sem mörg þeirra eru ensím. Ensím eru hvatar sem gera það að verkum að efnahvörf verða nægilega hröð til þess að lífvera haldi lífi. Það er því ljóst að prótín ráða bæði gerð frumna og starfsemi þeirra og þar með eiginleikum lífverunnar.

Hver fruma í mannslíkamanum inniheldur erfðaefni sem ópakkað væri um 1,8 m. Það er því ljóst að það þarf að þjappa því verulega mikið saman til þess að það komist fyrir inni í litningunum í kjarna frumnanna. Þar gegna sérhæfð prótín í litningunum, meðal annars prótín sem kallast histón, lykilhlutverki. Þau verka sem nokkurskonar spólur eða kefli sem DNA vefst utan um þannig að það tekur ekki nema örlítið pláss.

Prótín í litningum hafa þó einnig öðru hlutverki að gegna, þau geta tekið þátt í að stjórna því hvernig gen vinna. Um það er til dæmis fjallað í svari við spurningunni: Hvað eru stýrigen og hvert er hlutverk þeirra?

Á Vísindavefnum eru fleiri og ítarlegri svör þar sem erfðaefnið, litningar og gen koma við sögu, til dæmis:

Heimildir og frekara lesefni:

Höfundur

Útgáfudagur

21.10.2009

Spyrjandi

Sigurður Egilsson

Tilvísun

EDS. „Úr hvaða tveimur efnum eru litningar og hvaða hlutverki gegna efnin?“ Vísindavefurinn, 21. október 2009. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=54102.

EDS. (2009, 21. október). Úr hvaða tveimur efnum eru litningar og hvaða hlutverki gegna efnin? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=54102

EDS. „Úr hvaða tveimur efnum eru litningar og hvaða hlutverki gegna efnin?“ Vísindavefurinn. 21. okt. 2009. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=54102>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...