Sólin Sólin Rís 05:26 • sest 21:28 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:24 • Sest 05:22 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:10 • Síðdegis: 18:30 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:11 • Síðdegis: 12:20 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hver er uppruni íslenska orðsins "óðfluga" og hver er hugsunin á bak við það?

Guðrún Kvaran

Orðið óðfluga er notað sem óbeygjanlegt lýsingarorð og sem atviksorð. Merkingin er 'mjög hraður; mjög hratt'. Fyrri liðurinn óð- er dregin af lýsingarorðinu óður í merkingunni 'hraður, tíður' og er notaður í herðandi merkingu. Sem dæmi mætti nefna óðfara 'sem fer hratt', óðlyndur 'fljóthuga, ákafur' og óðviðri 'mikið óveður'.

Óðfluga merkir 'mjög hraður; mjög hratt'.

Í fornu máli var óð- algengari liður í myndun orða en nú, til dæmis óðhraður 'mjög hraður' og óðlátur 'ákafur', en hvorugt þessara orða er notað í nútímamáli. Síðari liðurinn –fluga er myndaður með hljóðskiptum af sögninni fljúga (flaug – flugum – flogið) 'fljúga í loftinu (á vængjum)'.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

11.11.2009

Spyrjandi

Halldór Logi Hilmarsson, f. 1991

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni íslenska orðsins "óðfluga" og hver er hugsunin á bak við það?“ Vísindavefurinn, 11. nóvember 2009. Sótt 23. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=54015.

Guðrún Kvaran. (2009, 11. nóvember). Hver er uppruni íslenska orðsins "óðfluga" og hver er hugsunin á bak við það? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=54015

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni íslenska orðsins "óðfluga" og hver er hugsunin á bak við það?“ Vísindavefurinn. 11. nóv. 2009. Vefsíða. 23. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=54015>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...