Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Eru einhverjar líkur á að grasrella (Gallirallus dieffenbachii) sé ekki útdauð?

Jón Már Halldórsson

Gallirallus dieffenbachii er útdauð fuglategund af ætt rella (rallidae). Tegundin var einlend á þremur eyjum í Chathman-eyjaklasanum austan Nýja-Sjálands (einlend merkir að tegund finnst ekki annars staðar). Þessar þrjár eyjur eru smáar, stærst er Chathameyja sem er rúmir 800 ferkílómetrar, Pitteyja er aðeins tæpir 70 ferkílómetrar og Mangere er enn minni.

Gallirallus dieffenbachii hefur verið útdauður í tæplega 140 ár.

Talið er G. dieffenbachii hafi dáið út ekki seinna en 1872. Helstu ástæður þess að fuglinn dó út eru breytingar í vistkerfi hans með tilkomu rotta, katta og hunda sem áttu auðvelt með að veiða þessa ófleygu fugla auk þess sem gróðureldar ollu skemmdum á vistkerfinu. Eyjurnar eru það litlar og skóglendi til að felast í það lítið að afar ólíklegt er að þar sé að finna fugla sem enginn hefur orðið var við í næstum eina og hálfa öld.

Heimildir og mynd:

  • Trewick, S. 1997. Sympatric flightless rails Gallirallus dieffenbachii and G. modestus on the Chatham Islands, New Zealand; morphometrics and alternative evolutionary scenarios. Journal of The Royal Society of New Zealand, 27(4): 451-464.
  • The IUCN Red List of Threatened Species
  • Mynd: Dieffenbach's Rail á Wikipedia. Sótt 24. 8. 2009.

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

25.8.2009

Spyrjandi

Örn Arnarson

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Eru einhverjar líkur á að grasrella (Gallirallus dieffenbachii) sé ekki útdauð?“ Vísindavefurinn, 25. ágúst 2009. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=53111.

Jón Már Halldórsson. (2009, 25. ágúst). Eru einhverjar líkur á að grasrella (Gallirallus dieffenbachii) sé ekki útdauð? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=53111

Jón Már Halldórsson. „Eru einhverjar líkur á að grasrella (Gallirallus dieffenbachii) sé ekki útdauð?“ Vísindavefurinn. 25. ágú. 2009. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=53111>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...