Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Hvað éta krabbar annað en rækjur?

Jón Már Halldórsson

Þegar fólk talar um krabba á það yfirleitt við tífætta krabba (decapoda) en innan þeirra eru algengar tegundir hér við land eins og trjónukrabbi (Hyas araneus) og bogkrabbi (Carcinus maenas) auk þess sem rækjur og humrar teljast til þessa flokks.

Bogkrabbi (Carcinus maenas).

Krabbar, eins og trjónukrabbi og bogkrabbi, eru rándýr sem éta önnur fjörudýr svo sem skelfisk, burstaorma og smærri krabbadýr. Krabbar eru einnig hræætur (líkt og rækjur) og leggjast á dauð dýr á sjávarbotninum. Krabbar éta því ýmislegt annað en rækjur, og líklega eru þær ekki stór hluti af fæðu þeirra.

Mynd:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

6.8.2009

Spyrjandi

Kolbeinn Vormsson

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvað éta krabbar annað en rækjur?“ Vísindavefurinn, 6. ágúst 2009. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=52867.

Jón Már Halldórsson. (2009, 6. ágúst). Hvað éta krabbar annað en rækjur? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=52867

Jón Már Halldórsson. „Hvað éta krabbar annað en rækjur?“ Vísindavefurinn. 6. ágú. 2009. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=52867>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd: ...