Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Hvernig get ég breytt nafninu mínu?

EDS

Samkvæmt 17. grein laga um mannanöfn nr. 45/1996 er heimild fyrir því að fá nafni sínu breytt í Þjóðskrá einu sinni nema sérstaklega standi á. Hvernig ferlið er og hvort nafnbreytingin er gjaldskyld eða ekki fer eftir því hvort aðeins er um að ræða breytingu á ritun nafns eða hvort um eiginlega nafnbreytingu er að ræða.

Ef um er að ræða breytingu á ritun nafns en ekki eiginlega nafnbreytingu þarf ekki að greiða gjald fyrir og er nóg að sækja um slíkt til Þjóðskrár á sérstöku eyðublaði sem þar fæst.

Ef hins vegar er um eiginlega nafnbreytingu að ræða þarf að sækja um slíkt til dómsmálaráðherra og er breytingin gjaldskyld. Í 13. grein laga um mannanöfn nr. 45/1996 segir:

Dómsmálaráðherra er heimilt að leyfa manni breytingu á eiginnafni og/eða millinafni skv. 6. gr., þar með talið að taka nafn eða nöfn til viðbótar því eða þeim sem hann ber eða fella niður nafn eða nöfn sem hann ber ef telja verður að ástæður mæli með því.

Hjá Þjóðskrá má fá eyðublað til þess að sækja um nafnbreytingu til dómsmálaráðuneytisins. Á eyðublaðinu kemur fram að gjald fyrir nafnbreytingu er 4.400 kr. og greiðist það eftir útgáfu leyfisbréfs. Ef umbeðið eiginnafn er ekki á mannanafnaskrá þarf 2.000 kr. gjald að fylgja með beiðni.

Frekari fróðuleikur á Vísindavefnum:

Upprunalega hljóðaði spurningin svona:

Mig langar að breyta nafninu mínu algjörlega (fyrir utan föðurnafnið). Segjum að ég heiti Pétur Karl Jónsson og langar að breyta í til dæmis Einar Páll Jónsson. Hvert á ég að leita til að gera það og hvað kostar það ef einhver kostnaður er?

Höfundur

Útgáfudagur

8.5.2009

Spyrjandi

Ingi Thor Þórarinsson, f. 1991

Tilvísun

EDS. „Hvernig get ég breytt nafninu mínu?“ Vísindavefurinn, 8. maí 2009. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=52317.

EDS. (2009, 8. maí). Hvernig get ég breytt nafninu mínu? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=52317

EDS. „Hvernig get ég breytt nafninu mínu?“ Vísindavefurinn. 8. maí. 2009. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=52317>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...