Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Hvaða fuglar búa á norðurpólnum?

Jón Már Halldórsson

Á norðurpólnum, nyrsta punkti jarðar, er ekkert land heldur aðeins haf sem þakið er ís allan ársins hring. Dýralíf á norðurpólnum er afar fátæklegt og eflaust má dvelja þar lengi án þess að sjá nokkuð kvikt.

Hvítabirnir (Ursus maritimus) fara sjaldnar norður fyrir 82° N vegna lítils fæðuframboðs. Þó hafa hvítabirnir eða ummerki eftir þá sést í námunda við pólinn enda flækjast þeir oft víða. Sem dæmi má nefna að árið 2006 sá rannsóknarhópur spor eftir hvítabirni aðeins 1,6 km frá pólnum. Hringanórar (Pusa hispida), sem eru smávaxnir selir, hafa einnig sést skammt frá norðurpólnum auk þess sem spor eftir heimskautaref (Alopex lagopus) hafa fundist á þessum slóðum.



Aðstæður á norðurpólnum eru ekki beint hagstæðar blómlegu fuglalífi.

Um fuglalíf á norðurpólnum er það helst að segja að þar verpa engir fuglar. Pólfarar hafa hins vegar séð nokkrar tegundir þar eins og fýl (Fulmarus glacialis), snjótittling (Plectropenax nivalis) og ritu (Rissa tridactyla). Nokkrar skýringar kunna að vera á því að þessir fuglar hafa sést svo norðarlega, til dæmis er þekkt að fuglar fylgja oft eftir skipum og leiðöngrum á þessum slóðum og einnig geta þeir hrakist með vindum.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:

Mynd: North Pole á Wikipedia. Sótt 4. 9. 2009.

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

7.9.2009

Spyrjandi

Alexandra Kristjánsdóttir, f. 1996

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvaða fuglar búa á norðurpólnum?“ Vísindavefurinn, 7. september 2009. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=51883.

Jón Már Halldórsson. (2009, 7. september). Hvaða fuglar búa á norðurpólnum? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=51883

Jón Már Halldórsson. „Hvaða fuglar búa á norðurpólnum?“ Vísindavefurinn. 7. sep. 2009. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=51883>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvaða fuglar búa á norðurpólnum?
Á norðurpólnum, nyrsta punkti jarðar, er ekkert land heldur aðeins haf sem þakið er ís allan ársins hring. Dýralíf á norðurpólnum er afar fátæklegt og eflaust má dvelja þar lengi án þess að sjá nokkuð kvikt.

Hvítabirnir (Ursus maritimus) fara sjaldnar norður fyrir 82° N vegna lítils fæðuframboðs. Þó hafa hvítabirnir eða ummerki eftir þá sést í námunda við pólinn enda flækjast þeir oft víða. Sem dæmi má nefna að árið 2006 sá rannsóknarhópur spor eftir hvítabirni aðeins 1,6 km frá pólnum. Hringanórar (Pusa hispida), sem eru smávaxnir selir, hafa einnig sést skammt frá norðurpólnum auk þess sem spor eftir heimskautaref (Alopex lagopus) hafa fundist á þessum slóðum.



Aðstæður á norðurpólnum eru ekki beint hagstæðar blómlegu fuglalífi.

Um fuglalíf á norðurpólnum er það helst að segja að þar verpa engir fuglar. Pólfarar hafa hins vegar séð nokkrar tegundir þar eins og fýl (Fulmarus glacialis), snjótittling (Plectropenax nivalis) og ritu (Rissa tridactyla). Nokkrar skýringar kunna að vera á því að þessir fuglar hafa sést svo norðarlega, til dæmis er þekkt að fuglar fylgja oft eftir skipum og leiðöngrum á þessum slóðum og einnig geta þeir hrakist með vindum.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:

Mynd: North Pole á Wikipedia. Sótt 4. 9. 2009....