Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvers konar róða er í orðinu róðukross?

Guðrún Kvaran

Orðið róða hefur fleiri en eina merkingu. Í eldra máli var það notað sem samheiti yfir róðukross en það var einnig notað um kross almennt. Orðið merkir einnig ‘dýrlingsmynd’. Karlkynsmyndin róði merkti í eldra máli annars vegar ‘kross’ og hins vegar ‘dýrlingsmynd’.

Róðukross hefur einnig fleiri en eina merkingu. Orðið er notað um krossmark og kross með Kristsmynd á, en einnig um sérstakt galdramerki eins og sést hér á myndinni til hliðar.

Róða er sama orð og í ensku rood ‘róðukross’ og Rute í þýsku ‘stafur, stöng’.

Mynd:
  • Íslensk orðabók (2002:421).

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

13.3.2009

Spyrjandi

Kristinn Guðmundsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvers konar róða er í orðinu róðukross?“ Vísindavefurinn, 13. mars 2009. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=51486.

Guðrún Kvaran. (2009, 13. mars). Hvers konar róða er í orðinu róðukross? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=51486

Guðrún Kvaran. „Hvers konar róða er í orðinu róðukross?“ Vísindavefurinn. 13. mar. 2009. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=51486>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...