Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvar var Köllunarklettur?

Svavar Sigmundsson og Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

Köllunarklettur var við Viðeyjarsund í Reykjavík. Nafnið mun dregið af því að þaðan var kallað á ferju til Viðeyjar til flutnings yfir sundið.

„Köllunarklettur var látinn víkja vegna framkvæmda við Sundahöfn“, segir í ritinu Landið þitt Ísland (3. bindi, 277). Hann er merktur á kortinu Örnefni í Reykjavík, sem Guðlaugur R. Guðmundsson skráði og gaf út endurskoðað í maí 2000 með tilstyrk Spron og má sjá þann hluta kortsins hér fyrir neðan. Gera má ráð fyrir að Köllunarklettur hafi staðið nokkrun veginn framan við k-ið í upphafi nafnsins.

Strandlínan hefur tekið miklum breytingum frá því sem sýnt er á korti Guðlaugs og mikil landfylling hefur bæst við. Það getur því reynst erfitt að átta sig á því hvar kletturinn stóð. Til þess að bæta úr því hefur strandlínan eins og hún er á korti Guðlaugs, verið teiknuð inn á myndina hér fyrir neðan sem sýnir svæðið eins og það er í dag. Eins og áður er gert ráð fyrir að kletturinn hafi staðið um það bil þar sem k-ið er í upphafi orðsins.

Heimildir og myndir:

  • Þorsteinn Jósepsson, Steindór Steindórsson og Páll Líndal. Landið þitt. Ísland. 3. bindi. Reykjavík 1982.
  • Efri mynd: Örnefni í Reykjavík. Reykjavík: Guðlaugur R. Guðmundsson, 2000.
  • Neðri mynd: Grunnur frá Google Earth, gömul strandlína og örnefni af korti Guðlaugs R. Guðmundssonar.

Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hvar er Köllunarklettur? Ég á við klettinn þar sem fólk á leið til Viðeyjar stóð og kallaði á ferjumann. Ég hef lesið frásögn Árna Óla og skoðað gamlar loftmyndir af svæðinu í Sögustaður við Sund, en get ekki staðsett klettinn í nútíðinni (t.d. götuheiti og númer). Getið þið aðstoðað mig?

Höfundar

Svavar Sigmundsson

fyrrv. forstöðumaður Örnefnastofnunar

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

1.12.2008

Spyrjandi

Birna G. Bjarnleifsdóttir

Tilvísun

Svavar Sigmundsson og Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvar var Köllunarklettur?“ Vísindavefurinn, 1. desember 2008. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=48151.

Svavar Sigmundsson og Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. (2008, 1. desember). Hvar var Köllunarklettur? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=48151

Svavar Sigmundsson og Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvar var Köllunarklettur?“ Vísindavefurinn. 1. des. 2008. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=48151>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...