Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Orðið plebbi er í tísku núna en hvað þýðir það?

Guðrún Kvaran

Orðið plebbi er notað um ómenningarlegan eða lágkúrulegan mann. Það er stytting á nafnorðinu plebeji í sömu merkingu sem barst hingað úr dönsku plebejer og er eldra í málinu eða frá því snemma á 20. öld. Eins er til lýsingarorðið plebejískur 'lágkúrulegur' fengið frá dönsku plebejisk. Plebbi er vel þekkt í málinu frá því upp úr miðri 20. öld og sömuleiðis lýsingarorðið plebbalegur.

Upprunann er að sækja til latínu. Orðið plebs merkti 'fólk, lýður' og var notað um lægri stéttir Rómarríkis en orðið patricius sem er dregið af orðinu pater 'faðir' var haft um hástéttarfólk. Lýsingarorðið plebeius var þá notað yfir þá sem tilheyrðu almúganum.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

26.1.2004

Spyrjandi

Sölvi Melax, f. 1987
Ómar Jónsson, f. 1987

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Orðið plebbi er í tísku núna en hvað þýðir það?“ Vísindavefurinn, 26. janúar 2004. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=3968.

Guðrún Kvaran. (2004, 26. janúar). Orðið plebbi er í tísku núna en hvað þýðir það? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=3968

Guðrún Kvaran. „Orðið plebbi er í tísku núna en hvað þýðir það?“ Vísindavefurinn. 26. jan. 2004. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=3968>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...