Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Af hverju heitir það catwalk sem fyrirsætur ganga á?

Guðrún Kvaran

Orðið catwalk í ensku er notað um mjóan gangveg, mjóa göngubrú til dæmis yfir sviði í leikhúsi eða vélarrúmi í skipi. Það er einnig notað í merkingunni ‘sýningarpallur’ og er þá átt við gangbraut þá sem sýningarstúlkur ganga eftir á tískusýningum.

Að kenna þessa mjóu gangvegi við ketti er vegna fimleika kattarins og tækni við að ganga eftir mjóum syllum eða bríkum. Mjór hryggur með brattar hlíðar á báðar hendur sem ganga þarf eftir á Fimmvörðuhálsi er til dæmis nefndur Kattarhryggur.

Mynd:

Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Er til eitthvað íslensk orð yfir catwalk sem fyrirsætur virðast oft ganga á? Og af hverju heitir þetta catwalk?

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

22.5.2009

Spyrjandi

Þórey Rúnarsdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Af hverju heitir það catwalk sem fyrirsætur ganga á?“ Vísindavefurinn, 22. maí 2009. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=21048.

Guðrún Kvaran. (2009, 22. maí). Af hverju heitir það catwalk sem fyrirsætur ganga á? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=21048

Guðrún Kvaran. „Af hverju heitir það catwalk sem fyrirsætur ganga á?“ Vísindavefurinn. 22. maí. 2009. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=21048>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...