Næst var haldið í vettvangsrannsókn. Hjá borgaryfirvöldum fékkst leyfi til að grafa á Laugarnesi í ægifögrum skrautgarði vel þekkts kvikmyndaleikstjóra. Þar komust fornleifafræðingarnir í feitt og fundu forna gröf Jörundar hundadagakonungs. Gröfin er líklega til marks um mikla dýrkun landsmanna á hundum fyrr á tíð, en því miður fundust engar líkamsleifar hunda í gröfinni. Nú voru góð ráð dýr en með því að beita hundalógík og mikilli kunnáttu í örnefnafræði töldu fornleifafræðingarnir að best væri að hefja uppgröft á bæjarstæðinu Hundavaði. Til þess fengu þeir evrópska samstarfsstyrki en þar sem styrkirnir voru greiddur út í íslenskum krónum hljóðuðu þeir aðeins upp hundraðkall. Sú upphæð dugir ekki einu sinni til þess að finna rauða hunda á Landspítalanum! Spurningunni verður því ekki svarað fyrr en meira fé fæst til verksins. Í bráðabirgðaskýrslu fornleifafræðinganna sem skrifuð er með miklum og snjöllum fyrirvörum kemur eingöngu þetta fram:
Hundurinn gæti legið grafinn þar sem hnífurinn stendur í kúnni, eða þar sem köttur er kominn í ból bjarnar. Einnig er ráðlegt að leita alls staðar þar sem góður biti fer í hundskjaft og þar sem hægt er að kaupa köttinn í sekknum eða þar sem fiskur liggur undir steini. Eins gæti verið að hundurinn sé grafinn þar sem menn lepja dauðann úr skel án þess að hafa öðrum hnöppum að hneppa!Mynd:
- MuonionalustaMeteorites.com. Sótt 4.9.2009.
Við minnum lesendur á að þetta er föstudagssvar og allt sem hér kemur fram er tryggt með fullri ríkisábyrgð.