Sólin Sólin Rís 05:43 • sest 21:13 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 13:37 • Sest 06:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:59 • Síðdegis: 15:47 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:39 • Síðdegis: 21:50 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað þýðir „skor“ í orðum eins og stærðfræðiskor, og hvernig er það tilkomið? Eru til samsvarandi orð í skyldum tungumálum?

Guðrún Kvaran

Orðið skor hefur fleiri en eina merkingu. Ein þeirra er ‛deild í her Rómverja’ og er sú merking merkt „söguleg“ í Íslenskri orðabók. Frá þessari merkingu er vísast leidd sú notkun að nefna undirdeildir í skólum, einkum háskólum, skorir. Þá er um að ræða þann hluta háskóladeildar sem er saman um námsgreinar, til dæmis stærðfræðiskor, eðlisfræðiskor, íslenskuskor og fleira.

Í ýmsum erlendum háskólum tíðkast að skipta háskóladeildum niður á svipaðan hátt. Algeng heiti eru til dæmis afdeling á dönsku, Abteilung á þýsku og department og division á ensku en sjálfsagt eru fleiri heiti notuð.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

9.9.2010

Spyrjandi

Friðrik B. Þór

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir „skor“ í orðum eins og stærðfræðiskor, og hvernig er það tilkomið? Eru til samsvarandi orð í skyldum tungumálum?“ Vísindavefurinn, 9. september 2010. Sótt 18. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=14050.

Guðrún Kvaran. (2010, 9. september). Hvað þýðir „skor“ í orðum eins og stærðfræðiskor, og hvernig er það tilkomið? Eru til samsvarandi orð í skyldum tungumálum? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=14050

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir „skor“ í orðum eins og stærðfræðiskor, og hvernig er það tilkomið? Eru til samsvarandi orð í skyldum tungumálum?“ Vísindavefurinn. 9. sep. 2010. Vefsíða. 18. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=14050>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...