Hér er einnig að finna svar við spurningu Harðar Guðjónssonar Hvert er sjaldgæfasta spendýr Íslands?
Alls eru sex tegundir villtra landspendýra á Íslandi auk þess sem tvær tegundir sela kæpa meðfram ströndum landsins.
Tegundirnar eru:
Tófa (Alopex lagopus)
Minkur (Mustela vison)
Hreindýr (Rangifer tarandus)
Hagamús (Apodemus sylvaticus)
Húsamús (Mus musculus)
Brúnrotta (Rattus norvegicus)
Selir
Landselur (Phoca vitulina)
Útselur (Halichoerus grypus)
Svartrottan (Rattus rattus) er ekki landlæg en hefur borist hingað öðru hverju með skipum og jafnóðum verið útrýmt. Nokkrar aðrar tegundir spendýra slæðast hingað stöku sinnum og má þar helst nefna hvítabirni (ísbirni).
Ekkert íslenskt spendýr er í eiginlegri merkingu sjaldgæft en sá stofn sem telur fæsta einstaklinga er án efa íslenska hreindýrið þar sem stofninn á Austurlandi hefur verið á bilinu frá 2000 til 3000 einstaklingar en nýjustu stofnstærðarmælingar frá því í júlí 2000 hljóðuðu upp á 3000 einstaklinga. Flest voru hreindýrin árið 1976, eða 3600 dýr.
Mynd: Canada's Aquatic Environments
Jón Már Halldórsson. „Hvað eru margar tegundir villtra spendýra á Íslandi og hvað heita þær?“ Vísindavefurinn, 10. janúar 2001. Sótt 28. mars 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=1270.
Jón Már Halldórsson. (2001, 10. janúar). Hvað eru margar tegundir villtra spendýra á Íslandi og hvað heita þær? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=1270
Jón Már Halldórsson. „Hvað eru margar tegundir villtra spendýra á Íslandi og hvað heita þær?“ Vísindavefurinn. 10. jan. 2001. Vefsíða. 28. mar. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=1270>.
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!